Vill að Alþingi hafi forystu um hvítbók 4. nóvember 2008 13:35
Geir H. Haarde forsætisráðherra vill að Alþingi hafi ákveðna forystu um rannsókn á hruni bankanna og segist munu beita sér fyrir því í samstarfi við þingflokka og forseta Alþingis. Þetta kom fram í svari ráðherrans við fyrirpurn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri - grænna, á Alþingi í dag. Steingrímur innti ráðherra eftir því hvar á vegi rannsókn á hruni fjármálakerfisins væri stödd. Talað hefði verið um hvítbækur en síðan hefði ekki gerst. Almenningur gerðist æ órólegri og mikill skortur væri á upplýsingum. Almenningur hefði þá óþægilegu tilfinningu að framkvæmdavaldið ætlaði að rannsaka sig sjálft. Spurði Steingrímur hvort ekki þyrfti að koma til kasta Alþingis og hvort flokkarnir þyrftu ekki að ná samkomulagi um undirbúning rannsóknar, annaðhvort með því að setja lög eða koma þessu í annan farveg. Ekki væri hægt að ýta þessu á undan sér. Forsætisráðherra sagðist geta tekið undir meginsjónarmið Steingríms og benti á að hann sjálfur hefði boðað hvítbók. Hann hefð rætt þessi mál við forseta Alþingis og á vettvangi ríkisstjórnarinnar. Geir taldi eðlilegt að Alþingi hefði þarna ákveðna forystu og myndi beita sér fyrir því. Vildi Geir með að koma þessu máli í farveg sem ekki yrði deilt um. Velt yrði við hverjum steini og til þess þyrfti að fá einstaklinga sem allir gætu treyst. Þá þyrfti hugsanlega að leita til sérfræðinga erlendis. Enginn áhugi væri á að tefja máli en það þyrfti að undirbúa vel.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Sjá meira