Innlent

Þungir bensínfætur á Suðurnesjum

Fimm ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni eftir hádegi í dag. Sá er hraðast ók mældist á 134 kílómetra hraða á klukkustund. þar sem hámarkshraðinn er 90 km/klst.

Þá voru fjórir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í morgun, þar sem vegaframkvæmdirnar við Grindavíkurveg eru. Hámarkshraðinn þar er 50 km/klst en sá er hraðast ók mældist á 91 km/klst.

Þá voru tveir ökumenn kærðir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í morgun. Þeir voru báðir sviptir ökuréttindum til bráðabirgða, eftir því sem fram kemur dagbók lögreglunnar. Þá var ökumaður kærður í Reykjanesbæ fyrir það að aka án þess að hafa öðlast ökuréttindi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×