Auknar líkur á olíu við Austfirði 11. nóvember 2008 19:12
Nýjar jarðfræðirannsóknir benda til að líkur séu á að olía kunni að finnast mun nær austurströnd Íslands en áður hefur verið talið og jafnvel undir Austfjörðum. Alþjóðleg olíufélög sýna Íslandi aukinn áhuga vegna nýrra vísindakenninga um tengsl olíu og eldvirkra svæða.Þeir norsku olíujarðfræðingar sem gerst þekkja til Drekasvæðisins telja að það verði næsti Norðursjór, svo miklar séu auðlindirnir þar, og spá því að fyrsta olían náist þar upp á næstu þremur til fimm árum. En hugsanlega getum við fundið olíu ennþá nær Íslandi.Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur við Háskóla Íslands, segir að vísbendingar hafi verið að koma fram á undanförnum árum sem bendi til þess að meginlandsskjöldurinn, sem talinn er geyma olíu á Drekasvæðinu, teygi sig sunnar og nær Íslandi og jafnvel undir Ísland.Vegna olíuleitar í Færeyjum og nýrra vísindakenninga um tengsl olíulinda og eldvirkra svæða hafa sex alþjóðleg olíufélög nýlega sent sérfræðinga til rannsókna á Íslandi. Þá eru að fást nýjar vísbendingar með rannsókn Bryndísar Brandsdóttur á hafsvæðinu milli Kolbeinseyjar og Ægishryggs og rannsókn Olgeirs Sigmarssonar á fjallinu Hvítserk á Austurlandi. Þar hafi fundist zirkon-krystallar, sem séu miklu eldri heldur en elsta berg á Íslandi. Þeir séu það gamlir að þeir hljóti að vera úr meginlandsskildinum.Þetta séu vísbendingar um að meginlandsskjöldurinn sé undir Borgarfirði eystra og ef hann sé samhangandi við Drekasvæðið ætti hann að teygja sig alla leið þangað. Þetta segir Ármann auka líkurnar á olíu mun nær Íslandi og jafnvel undir landinu. Úr því að sérfræðingar telji líklegt að olía finnist í Færeyjum sé mjög líklegt að það sama gildi um Ísland. Úr því fáist ekki skorið nema með rannsóknum.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Sjá meira