Ísland hefur svigrúm til að víkja frá hvíldartímareglum 9. apríl 2008 12:00
Ísland hefur svigrúm til að víkja frá reglum um að vörubílstjórar taki sér hvíld á fjögurra og hálfs tíma fresti samkvæmt reglugerð Evrópusambandsins. Rangt er hins vegar, sem vörubílstjórar hafa haldið fram, að reglugerðin nái ekki yfir eyríki eins og Ísland. Íslensku hvíldarreglurnar segja að ökumaður skuli gera hlé á akstri í að minnsta kosti 45 mínútur eftir akstur í fjóra og hálfa klukkustund. Sturla Jónsson, talsmaður vörubílstjóra, hefur sagt að lögin sem íslenskum vörubílstjórum sé gert að fara eftir eigi sér enga stoð í eyríki eins og Íslandi. Í samtölum fréttastofu Stöðvar 2 við vörubílstjóra hefur einnig borið á þeim misskilningi að evrópska reglugerðin eigi ekki við eyríki sem ekki séu tengd öðru ríki með brú, vaði eða göngum. Fréttastofa náði sér í evrópsku reglurnar og hið rétta er að undanþágan gildir um ökutæki sem eingöngu keyra á eyjum, ótengdum meginlandi, sem eru 2300 ferkílómetrar að stærð eða minni. En eins og margir vita er Ísland öllu stærra, eða rétt um 103 þúsund ferkílómetrar. Hitt virðist rétt samkvæmt evrópsku reglugerðinni, sem þær íslensku eru byggðar á, að ráðherra hefur svigrúm til að hnika til aksturstímanum.
Mest lesið „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent Samantekt: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni Innlent „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Erlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein Erlent Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Innlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Fleiri fréttir Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Samantekt: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Sjá meira