Þingflokkur VG harmar ákvörðun umhverfisráðherra 4. apríl 2008 12:14 Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs harmar þá ákvörðun umhverfisráðherra Þórunnar Sveinbjarnadóttur að greiða götu álversframkvæmda í Helguvík eins og það er orðað. Með því að staðfesta fyrri ákvörðun Skipulagsstofnunar um umhverfismat fyrir álver í Helguvík hunsi ráðherra náttúruvernd í landinu og svíki öll fyrri loforð um stóriðjuhlé. „Það er æðsta hlutverk umhverfisráðherra að standa vörð um náttúru landsins og framfylgja ábyrgri umhverfisstefnu. Það er óforsvaranlegt að ráðherrann úrskurði gegn umhverfi og náttúruvernd og hafni þeirri eðlilegu kröfu Landverndar að fram fari heildarumhverfismat fyrir álver, virkjanir og flutningslínur. Þá vekur furðu að ráðherra treysti sér ekki einu sinni til að taka efnislega afstöðu til málsins í heild heldur vísi öðrum megin þætti þess frá, þrátt fyrir að málið sé búið að velkjast í ráðuneytinu og embættismannakerfinu í marga mánuði. Umhverfisráðherra hefur nú setið á ráðherrastóli í tíu mánuði og hefur á þeim tíma haft gnótt tækifæra til að leggja fram breytingar á lögum og reglum, endurskoða vinnubrögð og taka ákvarðanir til að treysta betur náttúruvernd í landinu. Það er til lítils fyrir valdhafa að segjast vera ósátt við eigin ákvarðanir eða nefna í orði kveðnu óljósar stjórnarskrárbreytingar í framtíðinni ef í reynd ekkert er að gert til að stöðva stóriðjuáætlanir og náttúrueyðileggingu. Það er hægur vandi að breyta um stefnu án stjórnarskrárbreytinga ef raunverulegur vilji er fyrir hendi innan ríkisstjórnarinnar. Í kosningabaráttunni síðastliðið vor hamraði Samfylkingin á loforðum sínum um stóriðjuhlé. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs krefst skýringa á svikunum og skorar á ríkisstjórnina að hverfa frá þjónkun við hina blindu stóriðjustefnu með tilheyrandi náttúruspjöllum, þensluáhrifum í efnahagsmálum og neikvæðum ruðningsáhrifum gagnvart öðru atvinnulífi. Það er enn ekki of seint fyrir Samfylkinguna að standa við gefin loforð og framfylgja ábyrgri umhverfisstefnu í anda sjálfbærrar þróunar, en nú eru síðustu forvöð og trúverðugleiki flokksins í umhverfismálum er í húfi í heild sinni,“ segir í tilkynningu þingflokks Vinstri - grænna.
Mest lesið „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Erlent Gefur skít í helvítishótanir Trumps Innlent Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Veður Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Innlent „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Erlent Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Veður „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Innlent Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar Innlent Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Erlent Fleiri fréttir Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Sjá meira