Pólverji á meðal 16 nýnema í lögregluskólanum Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. september 2008 15:31 Nýnemar í lögregluskólanum voru í lögfræðitíma þegar Vísir hitti á þau.
Aleksandra Wójtowicz er fyrsti Pólverjinn sem stundar nám í lögregluskóla hér á landi. Aleksandra er þrítug að aldri. Hún fædd og uppalin í Póllandi en hefur búið á Íslandi um árabil. Hún varð íslenskur ríkisborgari árið 2001 og hefur talsvert starfað með lögreglunni á Eskifirði sem túlkur. Vísir hitti á Aleksöndru og bekkjarfélaga hennar þar sem þau voru í lögfræðitíma í lögregluskólanum. Hópurinn hóf nám þann 9. september síðastliðinn. Þau hafa breiðan bakgrunn, sumir með háskólamenntun á bakinu, aðrir með iðnmenntun. Einnig eru í hópnum ráðgjafi í barnaverndarmálum, tollvörður, fangavörður og íþróttafræðingur. Meirihluti hópsins hefur starfað hjá lögreglunni áður, en þau eru öll sammála um að námið efli þau í daglegu lífi, en styrki þau jafnframt í starfi fyrir lögregluna. Í lögregluskólanum læra þau meðal annars sálfræði, lögfræði og íslensku. „Við lærum líka að mæta fólki á förnum vegi og hvernig við eigum að beita okkur á vettvangi," sagði einn nemandinn í samtali við Vísi. Annar nemandinn bætti við að í lögregluskólanum væri jafnvel kennt að strauja skyrtur. Nemendurnir sem Vísir ræddi við eru sammála um að starf lögreglunnar sé mjög spennandi. Fjölbreytileiki starfsins sé það sem heilli mest. Aldrei sé hægt að sjá fyrir með einhverri vissu hvað hver vakt beri í skauti sér. Starfið sé því mjög spennandi þó það eigi sér sínar skuggahliðar. Lögreglunámið sé góður undirbúningur til að takast á við skuggahliðar starfsins.
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Baldur til Eyja Innlent Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Innlent Fleiri fréttir Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Sjá meira