Össur segir vert að skoða þjóðaratkvæði um aðildarviðræður 21. mars 2008 20:00 Össur Skarphéðinsson.
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir á pistli á heimasíðu sinni að vert sé að kanna vilja þjóðarinnar til aðildarviðræðna að Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í pistli sínum hendir Össur á lofti ummæli Björns Bjarnasonar í þættinum Mannamál á Stöð 2 þar sem hann ræddi nauðsyn þess að Íslendingar komi sér upp vegvísi um hvað eigi að gera í Evrópumálum.„Björn lagði beinlínis til að menn kæmust að sameiginlegri niðurstöðu um hvernig ætti að breyta stjórnarskránni til að hægt væri að sækja um aðild," segir Össur á síðu sinni. „Sömuleiðis þyrfti í þeim pakka að ákveða hvort - og hvernig - ætti að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um þá ákvörðun, að sækja um aðildina." Össur segir að ummæli Björns í þættinum teljist til tímamóta, þrátt fyrir að Björn sjálfur hafi sagt síðar að ekkert nýtt hafi verið í ummælum hans: „Ráðherrar af pólitískri hlaupstærð Björns Bjarnasonar leggja varla til að tíma og orku sé eytt í að búa til vegvísi um hvernig eigi að sækja um aðild að Evrópusambandinu - nema þeir telji vaxandi líkur á að það verði gert," segir Össur og bætir við: „Í því felast tímamótin."„Nú hefur dómsmálaráðherra glætt nýju lífi gamla hugmynd um að hugsanlega væri það góð aðferð til samstöðu að þjóðin tæki sameiginlega ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu um það, hvort ætti að sækja um," segir Össur einnig. „Það er ég til í fyrir mína parta að skoða. Ég tel að það gæti verið góð aðferð til að ná þeirri samstöðu sem Samfylkingin taldi eina af forsendum umsóknar á sínum tíma. Ekki síst í því ljósi er hugmynd Björns um vegvísinn mjög jákvætt framlag," segir ráðherrann að endingu.Ungir framsóknarmenn hafa einnig kastað þessari hugmynd fram og bent á að tilvalið væri að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið samfara forsetakosningum í vor.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi Innlent Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Orbán sakaður um sprengjutilræði Erlent Fleiri fréttir Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Sjá meira