Frímúrarareglan fellur fyrir UNIFEM konum Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 6. mars 2008 15:04 Vigdís Finnbogadóttir er heiðursgestur kvöldsins. MYND/Valli
Á laugardagskvöldið verða í fyrsta sinn í sögu Frímúrarareglunnar á Íslandi einungis konur í matsölum reglunnar á Skúlagötu. Þá heldur UNIFEM á Íslandi fjáröflunarkvöldverð í tilefni af Fiðrildavikunni sem staðið hefur yfir og miðar að afnámi ofbeldis gegn konum í heiminum. Hrund Gunnsteinsdóttir talskona Fiðrildavikunnar segir að um 250 konur verði á kvöldverðinum. Miðaverð er 70 þúsund krónur og rennur ágóðinn óskiptur til málefnisins. Þá verða einnig seld verk nokkurra listamanna í fjáröflunarskyni um kvöldið. Þeirra á meðal er málverk af fiðrildi eftir Eggert Pétursson sem metið er á eina milljón króna, síðkjóll hannaður af Steinunni Sigurðardóttur og listræn ljósmynd eftir Rebekku Guðleifsdóttur. „Konur og fyrirtæki eru að bjóða systrum, vinkonum, ömmum og mæðrum með sér," segir Hrund og bætir við að konur ætli að fagna því hvað það er að vera kona; „Við viljum styrkja systralagið, standa með konum hinum megin á hnettinum." Heiðursgestur kvöldsins er Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands. „Við erum svo stoltar af því sem hún stendur fyrir, auk þess vildi hún endilega borga miðann sinn sjálf til að láta gott af sér leiða," segir Hrund. Auk Vigdísar eru sérstakir gestir kvöldsins Joanne Sandler aðalframkvæmdastýra samtakanna, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Olu Banke King-Akelere utanríkisráðherra Líberíu, en í landinu er við stjórnvölinn fyrsti lýðræðislega kjörn kvenforseti í Afríku. Hver króna skiptir máliStyrktarsjóður UNIFEM til afnáms ofbeldis gegn konum er eini sjóðurinn sinnar tegundar í heiminum. Í fyrra bárust 512 umsóknir frá 115 löndum um styrk úr sjóðnum. Einungis reyndist mögulegt að fjármagna sex prósent styrktarumsókna. „Hver einasta króna skiptir máli," segir Hrund og bendir á mikilvægi landssöfnunarinnar sem nú stendur yfir. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu UNIFEM en helstu söfnunarsímanúmer eru 904-1000, 904-3000 og 904-5000. Örmyndir um slæmar aðstæður kvenna í heiminum eftir þær Hrund og Kristínu Ólafsdóttur kvikmyndagerðarkonu verðar sýndar um kvöldið, en þær hafa verið sýndar í Kastljósi í vikunni.
Tengdar fréttir Að verða frjáls eins og fiðrildi Söfnunarátak UNIFEM fyrir konur í þremur stríðshrjáðum löndum hófst í gær undir yfirskriftinni Fiðrildavika. Fiðrildið, merki vonar og styrksins í mýktinni, hefur verið táknmynd fyrir umbreytingar í lífi fólks í átt til frelsis. 4. mars 2008 06:00 Fiðrildaganga UNIFEM í kvöld! Í tilefni af Fiðrildaviku UNIFEM efna BAS og UNIFEM til FIÐRILDAGÖNGU miðvikudaginn 5. mars kl. 20:00. Gengið verður frá húsakynnum UNIFEM á mótum Frakkastígs og Laugavegs, niður á Austurvöll. 5. mars 2008 10:42 Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira
Að verða frjáls eins og fiðrildi Söfnunarátak UNIFEM fyrir konur í þremur stríðshrjáðum löndum hófst í gær undir yfirskriftinni Fiðrildavika. Fiðrildið, merki vonar og styrksins í mýktinni, hefur verið táknmynd fyrir umbreytingar í lífi fólks í átt til frelsis. 4. mars 2008 06:00
Fiðrildaganga UNIFEM í kvöld! Í tilefni af Fiðrildaviku UNIFEM efna BAS og UNIFEM til FIÐRILDAGÖNGU miðvikudaginn 5. mars kl. 20:00. Gengið verður frá húsakynnum UNIFEM á mótum Frakkastígs og Laugavegs, niður á Austurvöll. 5. mars 2008 10:42