Lífið

Fiðrildaganga UNIFEM í kvöld!

Thelma Ásdísardóttir flytur ljóð á Austurvelli í kvöld.
Thelma Ásdísardóttir flytur ljóð á Austurvelli í kvöld.

Í tilefni af Fiðrildaviku UNIFEM efna BAS og UNIFEM til FIÐRILDAGÖNGU miðvikudaginn 5. mars kl. 20:00. Gengið verður frá húsakynnum UNIFEM á mótum Frakkastígs og Laugavegs, niður á Austurvöll.

Fyrir göngunni fara 12 þjóðþekktir einstaklingar með kyndla og við verðum í góðum takti með kvennakórnum Léttsveit Reykjavíkur. Þá mun Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra einnig slást með í för samkvæmt nýjustu upplýsingum. 

Göngunni lýkur svo með uppákomu á Austurvelli. Vikuna 3. - 8. mars mun UNIFEM á Íslandi standa fyrir FIÐRILDAVIKU þar sem vakin er athygli á ofbeldi gegn konum í þróunarlöndum og á stríðshrjáðum svæðum.

Dagskrá á Austurvelli

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi, ávarpar göngufólk

Ellen Kristjáns og co taka lagið

Thelma Ásdísardóttir les ljóð

Kynnar verða BAS stelpurnar

Dagskrá lýkur um kl 21:15

Kyndlaberar

1. Thelma Ásdísardóttir. Starfskona Stígamóta

2. Amal Tamimi. Fræðslufulltrúi Alþjóðahúss

3. Tatjana Latinovic. Formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi

4. Gísli Hrafn Atlason. Ráðskona Karlahóps Femínistafélags Íslands

5. Þórunn Sveinbjarnardóttir. Umhverfisráðherra

6. Sigþrúður Guðmundsdóttir. Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins

7. Dagur B. Eggertsson. Læknir og borgarfulltrúi

8. Hrefna Hugósdóttir. Formaður ungliðadeildar Hjúkrunarfræðinga

9. Þórunn Lárusdóttir. Leikkona

10. Kristín Ólafsdóttir. Framleiðandi og verndari UNIFEM á Íslandi

11. Svafa Grönfeld. Rektor HR

12. Lay Low. Söngkona

Í Fiðrildaviku UNIFEM verður lögð sérstök áhersla á að styðja við verkefni í Kongó, Líberíu og Súdan sem hafa það að markmiði að uppræta ofbeldi gegn konum. Þetta er málefni sem snertir okkur öll því í dag verður ein af hverjum þremur konum í heiminum fyrir kynbundnu ofbeldi á lífsleið sinni!

Fiðrildið táknar umbreytingu til hins betra og fiðrildaáhrif (butterfly effect) vísa í þá kenningu að vængjasláttur örsmárra fiðrilda í einum heimshluta geti haft stórkostleg áhrif á veðurkerfi hinum megin á hnettinum.

Það má svo sannarlega heimfæra kenninguna um fiðrildaáhrifin á átak UNIFEM á Íslandi sem mun gefa konum í þróunarlöndum og á stríðshrjáðum svæðum byr undir báða vængi. Með þinni þátttöku getur þú haft fiðrildaáhrif!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.