Árni aflaði sér ekki nýrra gagna 28. febrúar 2008 11:44 MYND/GVA
Árni Mathiesen fjármálaráðherra leitaði sér ekki nýrra gagna þegar hann ákvað að skipa Þorstein Davíðsson sem dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Austurlands og gekk þar þvert á álit sérstakrar hæfisnefndar. Þetta kemur fram í svari hans við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar, þingmanns Vinstri - grænna, um málið. Fram kemur í svarinu að Árni Mathiesen að hann hafi verið settur dómsmálaráðherra í málinu að tillögu forseta Íslands á ríkisstjórnarfundi 18. desember en tveimur dögum síðar var tilkynnt um skipun Þorsteins. Um hádegi þann 18. desember eftir ríkisstjórnarfundinn fór fjármálaráðherra í dóms- og kirkjumálaráðuneytið og fékk öll gögn er vörðuðu málið afhent, það er umsóknir ásamt fylgigögnum, álit dómnefndar og önnur bréf tengd málinu og auk þess eldri umsóknir umsækjenda og fylgigögn, sem fyrir lágu í ráðuneytinu. Ráðherra aflaði sér ekki frekari gagna sem fyrr segir og og var málið til meðferðar hjá honum frá hádegi þann 18. desember 2007 til dagsloka þann 20. desember 2007. Til samanburðar var málið frá 7. nóvember til 29. nóvember í fyrra hjá dómnefnd um hæfi umsækjenda. Umsækjendum var sent álit dómnefndar þann 11. desember og fengu þeir frest til 17. desember til að bregðast við þeim með athugasemdum. Að lokum kemur fram í svari setts dómsmálaráðherra að hann leitaði ekki til meðmælenda en skrifleg meðmæli sem fyrir lágu í málinu höfðu áhrif á ákvörðunina.
Mest lesið Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Erlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Innlent Fleiri fréttir „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Sjá meira