Deilt um skattamál á þingi 26. febrúar 2008 14:18 MYND/GVA
Deilt var um það á Alþingi í dag hvort skattalækkanir til handa fyrirtækjum eða almenningi væri mikilvægari nú um stundir. Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn gagnrýndu vinstri - græna um að vilja aldrei lækka skatta en formaður Vinstri - grænna sagði að svigrúm ætti að nýta til þess að draga úr skattbyrði lágtekjufólks. Birgir Ármansson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kvaddi sér hljóðs undir liðnum störf þingsins og vildi ræða þau áform ríkisstjórnarinnar að lækka skatta á lögaðila úr 18 prósentum í 15. Vísaði hann til nýútkominnar bókar, Skattalækkanir til kjarabóta, þar sem fjölmargir innlendir og erlendir fræðimenn fjölluðu um skattmál. Þar kæmi fram að lækkun skatta væri fólki og fyrirtækjum til hagsbóta. Sagði hann vinstri - græna hins vegar hafa allt á hornum sér og saka menn um þjónkun við auðvaldið. Sagði hann það athyglisvert í ljósi þess að mikilvægt væri að atvinnulífið fengi jákvæð skilaboð um þessar mundir. Spurði hann Steingrím J. Sigfússon, formann Vinstri - grænna, um það hvort það væri ekki rétt skilið að flokkurinn legðist eindregið gegn því að lækka skatta á fyrirtæki og hvort hann vildi ekki hækka fjármagnstekjuskatt. Vinstrihreyfingin - grænt framboð ekki nýfrjálshyggjuflokkur Steingrímur svaraði því til að menn ættu kannski að velta fyrir sér hvers vegna verið væri að ræða neyðarráðstafanir í efnhagsmálum og skrifa um það langar greinar í blöð. Vinstri - græn hefðu ekki hagað hagstjórn þannig að grípa þyrfti að til neyðarráðstafana. Vinstri - græn teldu að svigrúm ætti að nýta þannig að það gagnaðist lágtekjufólki. Það hefði fengið auknar skattbyrðar því skattleysismörk hefðu ekki fylgt launaþróun. Þar vantaði enn tugi þúsunda upp á. Þá sagði hann rétt að Vg vildi 14 prósent fjármagnstekjuskatt í stað tíu prósenta en slíkur skattur væri enn með því lægsta sem þekktist þrátt fyrir slíkar hækkanir. Þá sagði hann Vinstri - græn ekki nýfrjálshyggjulfokk ef þingmaðurinn hefði ekki tekið eftir því. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók undir með Birgi Ármanssyni og sagði virta fræðimenn hafa komist að því í áðurnefndri bók að lágir skattar hefðu í för með sér meiri ábata fyrir fólk og fyrirtæki. Sagði hann Steingrím geta reynt að gera lítið úr þeim en hann gæti ekki dregið niðurstöðurnar í efa. Menn hlytu að fagna því að ríkisstjórnin lækkaði tekjuskatt og vonast eftir að þetta væri aðeins fyrsta skrefið í skattalækkunum. Hin nýútkomna bók ætti að vera skyldulesning fyrir vinstri - græna. Velferðarhalli í þjóðfélaginu Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins, sagði spurninguna snúast um forgangsröðun í skattamálum. Það yrði að jafna þann velferðarhalla sem væri í þjóðfélaginu. Auknar skattbyrðar hefðu lagst á lágtekjufólk og frjálslyndir vildu að skattleysismörk fyrir láglaunafólk færu upp í 150 þúsund. Ríkisstjórnin hefði ákveðið að lækka skatta á fyrirtæki til að niðurgreiða kjarasamninga en það yrði að gera jafnt við fólk og lækka skatta hjá þeim sem mest þyrftu á því að halda. Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, fagnaði áformum ríkisstjórnarinnar um skattalækkanir. Benti hann á að öflugt og framsækið atvinnulíf væri forsenda góðs velferðarkerfis. Íslenskt atvinnulíf yrði að vera samkeppnishæft og koma yrði í veg fyrir flutning fyrirtækja úr landi. Það væri mikið hagsmunamál fyrir atvinnustigið í landinu og starfsfólk fyrirtækja að þau hefðu gott starfsumhverfi. Benti hann á reynsluna af síðustu tekjuskattslækkun stjórnvalda, þá hefðu tekjur ríkisins aukist til muna. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, sagði mikilvægt að ríkisstjórnin hefði lýst því yfir að farið yrði í að hækka persónuafsláttinn í tengslum við nýgerða kjarasamninga. Benti hann á að skatta- og bótakerfið hefði ekki verið nýtt nógu vel til að hjálpa fjölskyldufólki og hinum efnaminni og við því væri nú brugðist meðal annars með hærri persónuafslættr og hækkun skerðingarmarka barnabóta. Þá sagði hann ekki hægt að halda áfram að lækka skatta fyrr en vextir lækkuðu og mikilvægt væri að vaxtalækkunarferli Seðlabankans færi að hefjast.
Mest lesið „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Erlent Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Erlent Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Innlent Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Erlent „Þjóðin á rétt á að vita“ Innlent Fleiri fréttir „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Magnús Már nýr framkvæmdastjóri Áss „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Ökumenn beðnir um að sýna aðgát vegna fýlsunga Frá hrifningu til vonbrigða: Svona upplifðu borgarbúar almyrkvann Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og Grafarvogi Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Forskot Já-hliðarinnar mælist minna ESB-málin í brennidepli og uppgjör eftir almyrkvann Einn handtekinn vegna gruns um líkamsárás og hótanir „Ég get ekki orða bundist“ Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Bein útsending: Málstofa og sýning um íslensk námsgögn Umferð um Flókalund 430 prósentum meiri en vanalega Sjá meira