Davíð hvetur Vilhjálm til að halda áfram 19. febrúar 2008 09:29 Davíð Oddsson leggur sitt af mörkum til stuðnings Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni.
Davíð Oddsson, Seðlabankastjóri og fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur undanfarna daga lagt hart að Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins að halda sínu striki þrátt fyrir mótbyr. Davíð hefur verið í góðu sambandi við Vilhjálm undanfarna daga og hringdi meðal annars til Vilhjálms um helgina til að stappa stálinu í hann. Samkvæmt heimildarmönnum Vísis kom skýrt fram í samtölum þeirra að Davíð hvatti Vilhjálm til að halda sínu striki eins og ekkert hefði í skorist. Davíð mun meðal annars hafa hvatt Vilhjálm til að aðhafast ekki neitt, ekki gefa neina yfirlýsingu heldur standa af sér mótbyrinn sem hann mætir þessa dagana. Vilhjálmur hefur legið undir ámæli fyrir óvönduð vinnubrögð í tengslum við REI-málið svokallaða síðastliðið haust og lýsti því yfir á blaðamannafundi fyrir rúmri viku að hann hygðist hugsa sinn gang í ljósi þeirrar gagnrýni sem hann hafði orðið fyrir. Fyrir liggur að Vilhjálmur mun að öllu óbreyttu taka við sem borgarstjóri í byrjun næsta árs samkvæmt samningi Sjálfstæðisflokksins og F-lista og óháðra. Geir H. Haarde, formaður flokksins, sagði í Silfri Egils á sunnudag að hann vænti þess að óvissunni í kringum framtíð Vilhjálms yrði eytt í þessari viku. Afstaða Geirs gerir það líklega að verkum að Vilhjálmur mun koma með yfirlýsingu um framtíð sína í vikunni, sennilega á morgun.
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Valgarð Már er látinn Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira