Fær pólitískt hæli 1. febrúar 2008 19:53 Frá Sri Lanka.
Starfsmanni norrænu vopnahléseftirlitssveitarinnar á Sri Lanka hefur verið veitt pólitískt hæli á Íslandi. Á sjötta hundrað manns hafa sótt um slíkt hér á landi síðan fyrsti pólitíski flóttamaðurinn fékk hæli hér á landi árið 1999 og hefur þeim öllum verið synjað. Útlendingastofnun segir alla sitja við sama borð. Samkvæmt heimildum fréttastofu er unnið að því að fá fjölskyldu hans til landsins frá Sri Lanka. Maðurinn var starfsmaður hjá SLMM, Vopnahléseftirlitinu á Sri Lanka og var bílstjóri og túlkur Magnúsar Norðdahl núverandi lögfræðings ASÍ sem starfaði þar hjá eftirlitssveitinni árið 2004. Maðurinn kom til landsins 2006 og starfaði á Kárahnjúkum um tíma. Atvinnuleyfi hans rann út og fór hann því til Noregs þar sem hann sótti um hæli. Því var synjað og honum vísað til ÍSlands aftur þar sem hælisumsóknin var tekin fyrir. Maðurinn er annar einstaklingurinn sem fær hæli flóttamanns samkvæmt flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna sem tók gildi 1951. Anna Ólafsdóttir forstöðumaður hælismála á Útlendingastofnun segir aðstæður mannsins hafa fallið undir flóttamannaskilgreininguna í samningnum. Árið 1999 fékk fyrsti maðurinn pólítskt hæli og var hann frá Afríku. Á árunum 1999-2008 hafa tæplega 550 flóttamenn sótt um hæli flóttamanns hér á landi. Rúmlega þrjátíu hafa fengið dvalarleyfi af mannúðarástæðum en einungis 2 hæli flóttamanns. En skildi það hafa haft áhrif á hælisveitingu útlendingastofnunar að maðurinn frá Sri Lanka hafi verið starfsmaður hjá vopnahléseftirlitinu. Magnús Norðdahl vildi ekki veita fréttastofu viðtal vegna málsins.
Mest lesið Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi Innlent Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Innlent Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Erlent „Norska leiðin“ sé leið Sjálfstæðisflokksins Innlent Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent Fúlsaði við þriggja forseta fundi Erlent „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Innlent Fleiri fréttir Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Undirbúa steypuvinnu fyrir nýju Ölfusárbrúna Þungar áhyggjur af „síversnandi stöðu Íslands“ „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Af hættustigi á óvissustig vegna eldgoss Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Tollar, höfundarréttur og þögn lögreglu í kynferðisbrotamálum Engin málaferli vegna slyss á Breiðamerkurjökli Tveir skjálftar um 3,3 að stærð Fundur hafinn í utanríkismálanefnd Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Ráðin nýr forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi „Norska leiðin“ sé leið Sjálfstæðisflokksins Eigandi bíls fullur af bensínbrúsum handtekinn Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Húsvíkingur á Norðurpólnum segir sögu merkustu landkönnuða 20. aldar Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Ákvörðun ráðherra muni seinka viðbragði við faröldrum framtíðar Þyrlan aftur á leið austur vegna umferðarslyss Ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórnar Tollahækkanirnar vonbrigði og þrýstir á um fund sem fyrst Forsætisráðherra ósátt með tolla og pólfarar á Húsavík Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Sjá meira
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent