Fjarri því að kuldamet falli 1. febrúar 2008 11:15 MYND/Vilhelm
Þótt kuldinn á landinu sé mikill þessi dægrin er fjarri því að 90 ára kuldamet frostaveturin mikla falli. Þetta segir Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur á fréttastofu Stöðvar 2. „Það er skemmtileg tilviljun að í dag eru akkúrat 90 ár frá því að einum mesta frostakafla á Íslandi lauk, að minnsta kosti síðan mælingar hófust. Sá kafli var veturinn 1918 sem oft hefur verið nefndur frostaveturinn mikli. Kaflinn hófst 6. janúar 1918 og stóð í þrjár vikur sunnan lands en lauk ekki fyrr en 1. febrúar á Norðurlandi," segir Sigurður. Á þessum tíma mældist frostið mest 36 gráður á Grímsstöðum á Fjöllum en í Reykjavík fór það mest í 24,5 gráður. „Kuldinn í dag er því varla hálfdrættingur á við mesta kuldann árið 1918," segir Sigurður. Kuldinn í dag er engu að síður meiri en landsmenn hafa átt að venjast undanfarnar vikur. Þannig mældist 19 stiga frost í Húsafelli í morgun og 11 stiga frost í Reykjavík. „Þetta kuldakast sem hefur varað í rúma viku nær hámarki snemma í fyrramálið," segir Sigurður og bendir á að kuldamet þessarar aldar í borginni gæti fallið. Árið 2004 var 15 stiga frost í Reykjavík sem er mesti kuldi á þessari öld. „Á sunnudag kemur lægð sem hefur það mikla hlutverk að koma burt þessu ísjökulkalda lofti. Því fylgja mikil átök," segir Sigurður enn fremur og býst við að það hlýni fyrst og fremst með ströndum landsins á sunnudag en ekki inn til landsins.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira