Innlent

Átök á Kaffi Krús á Selfossi í nótt

Til átaka kom á veitingahúsinu Kaffi Krús á Selfossi upp úr miðnætti þegar slettist upp á vinskapinn meðal fjögurra vinnufélaga, sem sátu þar að sumbli.

Lögregla var kölluð á vettvang til að skakka leikinn og gekk það vonum framar. Ekki liggur fyrir hvað olli missættinu og náðu mennirnir sátt um að kæra ekki hvern annan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×