Innlent

Fundu fíkniefni við húsleit í Breiðholti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann bæði amfetamín og kannabisefni við húsleit í Breiðholti eftir hádegi í gær.

Fíkniefnaleitarhundur var notaður við aðgerðina. Á sama stað fundust einnig munir sem grunur leikur á séu þýfi. Þrír karlar voru handteknir vegna rannsóknarinnar. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur eftir því sem segir í frétt lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×