Staðfest að borgin borgaði 580 milljónir fyrir Laugavegshúsin 31. janúar 2008 12:48
Í borgarráði í morgun var upplýst að húsin við Laugaveg 4 og 6 voru keypt á 580 milljónir króna eins og Vísir greindi frá fyrstur allra fjölmiðla. Í yfirlýsingu frá Samfylkingunni í Reykjavík segir að þar með sé ljóst að útgjöld borgarinnar vegna uppkaupa og uppbyggingar verða um milljarður króna. Ljóst sé að þessi ákvörðun þýði að Reykjavíkurborg ætli að reiða fram allt að milljarð króna til uppkaupa og endurbyggingar reitsins þar sem kostnaður við enduruppbyggingu hafi verið metin á 389 milljónir króna. Þetta sé fáránleg nýting á almannafé. Fórnarkostnaður Reykjavíkurborgar verði aldrei undir hálfum milljarði króna og geti hæglega orðið mun hærri. Í yfirlýsingunni segir einnig að upplýst hafi verið að samningamenn borgarinnar hafi ekki haft verðmat VST og Minjaverndar undir höndum þar sem eignirnar voru metnar á hundrað milljóna lægra verði. Ekker mat hefði heldur verið lagt á það hvaða þýðingu það hefði að seljendur hefðu í raun gefið borginni húsin með samkomulagi fyrir fáeinum vikum. Engin svör hafi fengist við því hversu mikið framtíðarhagsmunir borgarinnar gagnvart húsvernd og friðun skaðist vegna þessa gjörnings. Ljóst sé að Sjálfstæðisflokkurin hafi í raun verið að kaupa nýjan meirihluta fremur en tvö gömul hús. Eftirfarandi er niðurstaða Samfylkingarinnar í borgarráði:Ljóst er að kaup nýs meirihluta á fasteignum að Laugarvegi 4 og 6 stefnir uppbyggingaráformum við Laugarveg og í miðborg í óefni. Keypt hafa verið hús fyrir 580 milljónir króna - ofurverð sem skapar nýtt markaðsverð í sambærilegum og svipuðum málum. Ljóst er að þessi ákvörðun þýðir að Reykjavíkurborg ætli að reiða fram allt að milljarð króna til uppkaupa og endurbyggingar reitsins þar sem kostnaður við enduruppbyggingu hefur verið metin á 389 milljónir króna. Þetta er fáránleg nýting á almannafé. Fórnarkostnaður Reykjavíkurborgar verður aldrei undir hálfum milljarði króna og getur hæglega orðið mun hærri. Hefði friðun húsanna orðið að veruleika einsog gerst hefði þremur dögum eftir hin makalausu uppkaup hefði götumyndin haldið sér, skipulagsmál í miðborginni hefðu ekki verið í uppnámi, borgarsjóður hefði ekki tapað mörg hundruð milljónum og hættulegt fordæmi hefði ekki verið skapað sem skaða mun allar frekari áætlanir um húsvernd. Rökin um að borgin hljóti að þurfa að grípa inn í með uppkaupum þegar friðun húsa er í réttum farvegi halda engan veginn og hljóta að vekja margar spurningar nú þegar tillaga um friðun 10 húsa við Laugaveg er í farvatninu. Þessi málsmeðferð og þetta verð stefnir friðunartillögum og húsverndaráformum í miðborg og Kvos í voða.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira