Á endanum framkvæmdavaldið sem skipar dómara 31. janúar 2008 12:15
Umdeild skipan héraðsdómara á Norðurlandi eystra kom enn til umræðu á Alþingi í morgun þegar forsætisráðherra var spurður út í það álit Dómarafélags Íslands að vinnubrögð Árna M. Mathiesens, setts dómsmálráðherra, væru til þess fallinn að draga úr sjálfstæði dómstóla. Fyrirspyrjandi, Árni Þór Sigurðsson, vildi reyndar í óundirbúnni fyrirspurn til forsætisráðherra fá nákvæmar tímasetningar á því hvenær Árni Mathiesen hefði verið settur sem dómsmálaráðherra í málinu og hve langan tíma hann hefði tekið til að skoða og afgreiða málið. Geir H. Haarde sagði fáránlega spurningu að ætlast til þess að hann hefði á takteinum einstakar dagsetningar um þetta efni en sagði að menn hefðu það kerfi hér, hvort sem mönnum líkaði það betur eða verr, að það væri á endanum framkvæmdavaldið sem skipaði dómara. Það bæri að gera það eftir bestu samvisku og á grundvelli bestu fenginna upplýsinga en á endanum væri það mat ráðherra sem hlyti að ráða.Árni Þór sagði að þótt ráðherrann væri ekki bundinn af umsögn álitsnefndar væru völd hans takmörkuð. „Það sem hér er verið að vekja máls á í áliti Dómarafélagsins er ekki síst það að sjálfstæði dómstóla er stefnt í voða," sagði Árni Þór meðal annars.Geir H. Haarde spurði þá hvernig það gæti veikt sjálfstæði dómstóla að skipa mann sem dómnefnd hafi metið hæfan. „Línan liggur þar sem dómnefndin sker á milli hæfra og óhæfra. Í þessu máli var enginn metinn ekki hæfur," sagði Geir.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira