Innlent

Skýrsla stýrihóps um REI tekin fyrir í borgarráði á morgun

Skýrsla stýrihóps um málefni Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavíkur Energy Invest, undir forystu Svandísar Svavarsdóttur oddvita Vinstri grænna er tilbúin og verður á dagskrá borgarráðs á morgun.

Sjálfstæðismenn sem sátu í stýrihópnum fóru fram á aukafund hjá stýrhópnum áður en skýrslan verður lögð fram í borgarráði og varð Svandís við þeirri beiðni. Hún hyggst hins vegar greina frá gangi mála á morgun en skýrslan verður ekki lögð fram fyrr en á fimmtudag í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×