Ekkert að vanbúnaði að taka ákvörðun um legu Sundabrautar 30. janúar 2008 12:49
Samgönguráðherra er ekkert að vanbúnaði að taka strax ákvörðun um lagningu Sundarbrautar að mati borgarfulltrúa og formanns samgöngunefndar. Ráðherra segist sjálfur ætla að bíða með ákvörðunina til sumars eða þangað til umhverfismat liggur fyrir.Fram kom í máli Kristjáns L. Möller, samgönguráðherra, í fréttum Stöðvar tvö í gær að ekki stæði til að taka ákvörðun um lagningu Sundabrautarinnar fyrr en umhverfismat liggur fyrir. Sú vinna á hins vegar eftir að taka nokkra mánuði að sögn ráðherra og því ljóst að hans mati að ekki verður hægt að taka endanlega ákvörðun fyrr en í fyrsta lagi í sumar.Valið stendur nú milli tveggja leiða. Annars vegar er það hin svokallaða eyjaleið, sem Vegagerðin styður, og hins vegar sú lausn að leggja brautina í jarðgöng undir Elliðarárvog. Þverpólitísk samstaða er innan borgarstjórnar um að fara gangaleiðina en hún er talin vera um níu milljörðum króna dýrari.Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður samgöngunefndar Alþingis og flokksystir Kristjáns, sagði í samtali við fréttastofu í morgun ráðherra ekkert að vanbúnaði að taka ákvörðun strax. Sagði hún það ennfremur mikilvægt til að hægt sé að hefja sem fyrst undirbúningsvinnu fyrir framkvæmdirnar.Undir þetta tekur Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins. Hann segir að sér finnist ráðherra vera að fela sig á bak við embættismenn í þessu máli. Það séu öll kurl komin til grafar og taka þurfi ákvörðun í málinu.
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Sjá meira