Aðalfundur RÚV frestast vegna þess að stofnefnahagsreikning vantar 30. janúar 2008 11:41 Ómar Benediktsson, stjórnarformaður RÚV ohf. MYND/Pjetur
Aðalfundur Ríkisútvarpsins ohf. verður ekki haldinn á réttum tíma vegna þess að enn vantar stofnefnahagsreikning fyrir stofnunina. Vonir standa þó til að aðalfundurinn verði haldinn í febrúar. Ríkisútvarpið varð að opinberu hlutafélagi í fyrra og samkvæmt samþykktum þess á að halda aðalfund í lok janúar og á að boða hann með hálfsmánaðar fyrirvara. Ekki hefur enn verið boðað til fundarins og að sögn Ómars Benediktssonar, stjórnarformanns RÚV ohf., er það vegna þess að enn vantar stofnefnahagsreikning fyrirtækisins. Fyrr sé ekki hægt að loka ársskýrslu fyrirtækisins. „Mér skilst að stofnefnahagsreikningurinn sé í burðarliðnum og ég geri mér vonir um að aðalfundurinn verði haldinn í febrúar," segir Ómar. Hjá Ríkisendurskoðun fékkst það staðfest að reikningurinn væri enn þar en ekki lægi fyrir hvenær hann yrði tilbúinn. Aðspurður segir Ómar að rekstarniðurstöður síðasta árs liggi fyrir en hann telur ekki rétt að greina frá þeim fyrr en ársskýrslan í heild verði kynnt, það er á aðalfundi RÚV. Í ársskýrslunni á einnig að tiltaka hvernig Ríkisútvarpinu hafi tekist til við að uppfylla lögbundnar skyldur sínar sem útvarp i almannaþágu. Á aðalfundi RÚV verður jafnframt fjallað um starfskjarastefnu Ríkisútvarpsins, kjör útvarpsstjóra og annarra stjórnenda og sömuleiðis þóknun til stjórnarmanna RÚV. Boða skal hluthafa, það er fulltrúa ríkisins, stjórnarmenn, framkvæmdastjóra og endurskoðendur á hlutahafafund og fjölmiðla á aðalfund. Jafnframt er þingmönnum heimilt að sækja aðalfundinn og bera fram skriflegar fyrirspurnir.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Sjá meira