Gert verði ráð fyrir óvígðum reit í öllum nýjum kirkjugörðum 29. janúar 2008 16:24 MYND/Vilhelm
Dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu sem fela meðal annars í sér að í nýjum kirkjugörðum verði skylt að gera ráð fyrir óvígðum reit og sérstökum reitum fyrir önnur trúarbrögð en kristin.Frumvarpið er samið á grundvelli tillagna sem nefnd á vegum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins vann en hún átti að gera úttekt á lögum um kikjugarða, greftrun og líkbrennslu og leggja fram tillögur til úrbóta. Hafa verið álitaefni hvort nægilega skýrar reglur gildi um útfararþjónustu.Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að meginbreytingarnar sem lagðar séu til í frumvarpinu sé að í stað orðsins kirkjugarður í heiti laganna komi grafreitur þar sem kirkjugarðar eru einungis garðar þar sem kirkju er að finna. Þá er lagt til að flytja skuli lík í líkhús eftir að læknir er búinn að úrskurða mann látinn og að 21 dagur megi að hámarki líða frá andláti til útfarar. Einnig verði óheimilt að greftra lík eða brenna nema það sé lagt í kistu og hjúpað líkklæðum eða öðrum klæðnaði.Þá er sem fyrr segir gert ráð fyrir að í nýjum kirkjugörðum verði skylt að gera ráð fyrir óvígðum reit og sérstökum reitum fyrir önnur trúarbrögð en kristin. Auk þess verði bætt við ákvæði um sérstakan minningarreit við kirkju vegna horfinna, látinna eða drukknaðra sem skuli njóta sömu helgi og legstaður.Þá á samkvæmt frumvarpinu að verða heimilt að grafa kistu ungbarns í leiði með samþykki rétthafa þess. Er þetta ákvæði tilkomið annars vegar af tilfinningalegum sjónarmiðum og hins vegar verður það einnig til þess að spara rými í kirkjugarðinum.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fleiri fréttir Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Sjá meira