Vilja algjört bann við nektarsýningum 29. janúar 2008 15:43 Atli Gíslason er einn fjögurra þingmanna Vg sem leggja fram frumvarpið. MYND/GVA
Fjórir þingmenn Vinstri - grænna hafa lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Þar er gert ráð fyrir að undanþáguheimild til nektarsýninga í atvinnuskyni á veitingastöðum verði felld brott þannig að algjört bann verði við slíkum sýningum. Í greinargerð með frumvarpinu segir að sérfræðingar um kynferðisofbeldi hafi bent á að í skjóli nektardansstaða þrífist í mörgum tilfellum eiturlyfjasala og vændi auk þess sem erfitt sé að ganga úr skugga um hvort þær stúlkur sem starfi á slíkum stöðum séu neyddar til starfans eður ei. Vísað er til þess að fjölmargir aðilar hér á landi, þar á meðal lögregla og félagsþjónusta, hafi staðfest að þeir hafi átt samskipti við fórnarlömb mansals hér á landi. „Það þarf því enginn að velkjast í vafa um það að sú alþjóðlega glæpastarfsemi sem gengur út á að hagnýta sér bága stöðu kvenna til að leiða þær út í vændi eða aðra kynlífsþjónustu teygi anga sína hingað til lands og hafi jafnvel fest hér rætur," segir í greinargerðinni. Þar segir einnig: „Í ljósi þess að líkur eru á að vændi og mansal þrífist í skjóli nektardansstaða er erfitt að finna rök fyrir því að lögin veiti heimild til undanþágu frá almennu reglunni um að nektarsýningar skuli óheimilar á veitingastöðum. Ástæðan fyrir banninu á sínum tíma var að nýta það í baráttunni gegn vændi og mansali en undanþáguákvæðið stríðir óneitanlega gegn því meginmarkmiði."
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Sjá meira