Innlent

Fimm þúsund króna sekt fyrir að skafa ekki af bílrúðum

MYND/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft afskipti af allmörgum ökumönnum sem ekki hafa sinnt því að skafa af rúðum bíla sinna.

Fram kemur í frétt lögreglunnar að fyrir vikið setji umræddir ökumenn sjálfa sig og aðra vegfarendur í hættu með takmörkuðu útsýni. Sá sem ekki sinnir þessu getur átt yfir höfði sér fimm þúsund króna sekt. Af þeim sökum biður lögreglan ökumenn að taka sig á og skafa af bílrúðum en með því er öryggi allra betur tryggt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×