Einn hinna grunuðu vann hjá hraðsendingafyrirtækinu sem flutti dópið 27. janúar 2008 18:37
Einn þeirra þriggja sem sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa smyglað inn 5 kílóum af amfetamíni og 600 grömmum af kókaíni með hraðsendingu var starfsmaður fyrirtækisins sem mennirnir notuðu til að koma efnunum til landsins. Rannsókn lögreglu hefur verið afar viðamikil en talið er að málið tengist stórum smyglhring. Lögreglan handtók í síðustu viku fimm menn sem töldust tengjast málinu en var tveimur þeirra sleppt að loknum yfirheyrslum. Þrír voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald grunaðir um aðild að málinu. Mennirnir eru allir á þrítugsaldri og eru tveir þeirra bræður. Einn mannanna var starfsmaður hjá hraðsendingafyrirtækinu UPS sem starfar á Keflavíkurflugvelli. Hann starfaði samkvæmt heimildum fréttastofu á tollgæslusvæðinu og hafði því greiðan aðgang að sendingum til landsins. Þá vann einn mannanna hjá efnahagsdeild fjármálaráðuneytisins. Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri segir manninn ekki hafa gengt trúnaðarstöðu innan ráðuneytisins og hafi í starfi sínu ekki haft beinan aðgang að gögnum þess en Tollgæslan heyrir undir fjármmálaráðuneytið. Heimildir fréttastofu herma að lögregla telji að mennirnir séu aðeins peð í stærri smyglhring sem hafi um nokkurt skeið notað hraðsendingar til að smygla fíkniefnum til landsins. Tollgæslan fann efnin við venjubundið eftirlit í nóvember en þetta er mesta magn fíkniefna sem fundist hafa í hraðsendingum til landsins. Rannsóknin er í höndum lögreglunnar á Suðurnesjum en hún hefur verið unnin í nánu samstarfi við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Þá teygir hún anga sína meðal annars til Þýskalands.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira