Innlent

Strandaði á leið til Hólmavíkur

Gat kom á botn flutningaskipsins ICE Bird eða Ísfuglsins þegar það rakst utan í sker á leið til hafnar í Hólmavík. Kafarar könnuðu skemmdir skipsins sem reyndust ekki miklar og var því siglt til Akureyrar þar sem það fer í slipp.

Skipið, sem er á vegum Eimskipa, var að koma frá Danmörku með almennan varning. Á leið inn til Hólmavíkur í fyrrakvöld bar það aðeins af leið með þeim afleiðingum að það rakst utan í sker. Við það kom gat á botninn og rifa á sjótank skipsins. Skipinu var síðan siglt til Sauðárkróks þar sem það kom til hafnar í gærkvöldi.

Þar könnuðu kafarar skemmdirnar sem reyndust vera minniháttar. Að sögn Gunnar Steingrímssonar, hafnarstjóra á Sauðárkróki var engin hætta á ferðum og því hélt skipið för sinni áfram til Akureyrar þar sem það fer í slipp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×