Vefverðlaunin 2007: Vísir tilnefndur 26. janúar 2008 12:35
Vísir er tilnefndur sem besti afþreyingarvefurinn þegar Vefverðlaunin 2007 verða veitt á Hótel Sögu 1. febrúar næstkomandi. Samtök vefiðnaðarins standa að verðlaununum en fimm vefir eru tilnefndir í hverjum flokki og eru flokkarnir einnig fimm. Samtök vefiðnaðarins, í samstarfi við ÍMARK, kynna þá vefi sem dómnefnd Vefverðlaunanna 2007 hefur valið til úrslita í hverjum flokki. Vefverðlaunin 2007 verða veitt á Hótel Sögu 1. febrúar næstkomandi og hefst dagskráin með hanastéli kl. 17:00. Fyrr um daginn standa Samtök vefiðnaðarins fyrir ráðstefnu um vefmál þar sem úrval innlendra og erlendra fyrirlesara munu halda erindi og sitja fyrir svörum. Ráðstefnan hefst kl. 15:00 og er aðgangur ókeypis fyrir félagsmenn SVEF, en aðgangseyrir er kr. 5.000 fyrir utanfélagsmenn. Til úrslita keppa: Besti sölu og þjónustuvefurinn • Midi.is (www.midi.is) • Iceland Express (www.icelandexpress.is) • icelandair.is (www.icelandair.is) • Glitnir (www.glitnir.is) • Avant (www.avant.is) Þessi flokkur nær yfir þá sem eru að selja vörur og/eða þjónustu í gegnum vefinn. Hér er átt við sjálfsafgreiðsluvefi s.s. vefverslanir og bókunarvefi en einnig vefi sem kynna þjónustu viðkomandi fyrirtækis. Mikilvægt er að vefurinn geri notendum kleift að nálgast þær upplýsingar og framkvæma þær aðgerðir sem til er ætlast, og að notendur nái fram markmiðum sínum. Besti fyrirtækjavefurinn • Glitnir (www.glitnir.is) • TM (www.tm.is) • Síminn (www.siminn.is) • Landsbankinn (www.landsbanki.is) • Sjóvá (www.sjova.is) Besti fyrirtækjavefurinn þarf að hafa skýr markmið og styðja vel við starfsemi og þjónustu fyrirtækisins. Hann þarf jafnframt að styðja vel við annað kynningar‐ og markaðsstarf. Vefur sem gerir viðkomandi fyrirtæki kleift að ná markmiðum sínum. Besti vefur í almannaþjónustu • Veður.is (www.vedur.is) • Þjóðminjasafnið (www.thjodminjasafn.is) • Ísland.is (www.island.is) • Vefur Tryggingastofnunar (www.tr.is) • Slysavarnarfélagið Landsbjörg og Björgunarskólinn (www.landsbjorg.is) Flokkurinn besti vefur í almannaþjónustu nær til vefsvæða sem haldið er úti af hinu opinbera; s.s. stofnana og sveitarfélaga, en jafnframt til vefja félagasamtaka, verkalýðsfélaga eða annarra sambærilegra aðila. Besti afþreyingarvefurinn • Baggalútur (www.baggalutur.is) • Eve Online (www.eve-online.com) • Kvikmyndir.is (www.kvikmyndir.is) • Eyjan.is (www.eyjan.is) • Vísir (www.visir.is) Besti afþreyingarvefurinn nær til fjölmiðla, vefsamfélaga, leikjavefja og allra þeirra sem veita afþreyingarefni í gegnum vef. Hér er leitað eftir vef með afþreyingargildi, er skemmtilegur eða fróðlegur. Besta útlit og viðmót • Midi.is (www.midi.is) • Glitnir (www.glitnir.is) • FL Group (www.flgroup.is) • Iceland Express (www.icelandexpress.is) • TM (www.tm.is) Í þessum flokki er horft til þess að vefir nái að samþætta gott notendaviðmót og góða hönnun sem svo spilar vel með starfsemi fyrirtækisins eða vefjarsins sem um ræðir. Mikilvægt er að viðmót sé skýrt og notendavænt og að vefir séu hannaðir fyrir sína markhópa. Að auki verða veitt sérstök verðlaun fyrir besta einstaklingsvefinn, besta íslenska vefinn 2007 og Bjartasta vonin 2007 úr hópi allra þeirra vefja sem keppa til úrslita. Allar nánari upplýsingar um framkvæmd Vefverðlaunanna má finna hér á vef SVEF: http://svef.is/vefverdlaun-2007/ SVEF Samtök vefiðnaðarins (SVEF) eru fagsamtök þeirra er starfa að vefmálum á Íslandi. Samtökin hafa það að markmiði að miðla þekkingu og efla fagleg vinnubrögð í greininni, vera samræðuvettvangur félagsmanna og andlit stéttarinnar út á við. SVEF sér árlega um framkvæmd Vefverðlaunanna, í samstarfi við ÍMARK, en vefverðlaunin voru fyrst haldin árið 2000. Félagið stendur árlega fyrir ráðstefnunni IceWeb, sem er metnaðarfull alþjóðleg ráðstefna um vefmál, auk fjölda smærri fyrirlestra, umræðufunda og fagnaða fyrir félagsmenn.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Innlent Fleiri fréttir Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Sjá meira