Innlent

Nýjast frá Vegagerðinni

Vakin er athygli á að þjónustu er víðast hvar lokið á vegum í dag. Á

leiðinni milli Reykjavíkur og Akureyrar lýkur þjónustu klukkan tíu.

Hellisheiði er ófær en Þrengslunum verður sinnt til miðnættis.

Við minnum vegfarendur á að vegna framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar er nauðsynlegt að sýna þar aðgát. Sérstaklega biðjum við fólk að fara varlega við framhjáhlaup við Voga, Grindavíkurveg og Njarðvík. Vegfarendur eru beðnir að virða hraðatakmarkanir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×