Þyngsti dómur fyrir eitt nauðgunarbrot á Íslandi 25. janúar 2008 12:27
Fimm ára fangelsisdómur yfir Litháunum tveimur, sem sakfelldir voru fyrir hrottafengna nauðgun í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, er sá þyngsti sem fallið hefur fyrir eitt nauðgunarbrot í íslenskri dómaframkvæmd. Litháarnir Arunas Bartkus 32 ára og Rolandas Jancevicius 28 ára voru ákærðir fyrir að hafa báðir nauðgað konu aðfaranótt 10. nóvember síðastliðinn í húsasundi við Laugaveg eða Vitastíg í Reykjavík. Þá beittu þeir hana harkalegu ofbeldi, neyddu hana til munnmaka og mátti sjá verulega áverka á henni þegar hún leitaði til Neyðarmóttöku nauðgana. Dómurinn taldi öll gögn í málinu sýna að atburðurinnn hefði átt sér stað og vitnisburður konunnar væri trúverðugur þrátt fyrir sakarneitun annars þeirra. Þeir voru dæmdir í fimm ára fangelsi hvor og þurfa að greiða konunni tvær milljónir króna í miskabætur. Þetta er þyngsti dómurinn fyrir eitt einstakt nauðgunarbrot í íslenskri dómaframkvæmd að sögn Sigríðar Friðjónsdóttur saksóknara í málinu og taldi dómurinn að horfa bæri til þess hversu hrottalegur verknaður hinna ákærðu væri í ljósi kringumstæðna og þeirra svívirðilegu og niðurlægjandi aðferða sem þeir beittu gagnvart konu sem þeir þekktu ekki og áttu ekkert sökótt við. Litháarnir hafa ekki orðið uppvísir að refsiverðri háttsemi hér á landi áður en báðir hafa þeir hlotið dóma í heimalandi sínu. Árið 2002 hlaut Arunas Bartkus fimm ára fangelsisdóm í Litháen fyrir fjárkúgun og 2004 var hann dæmdur í árs fangelsi fyrir þjófnað. Hann kveðst hafa afplánað hluta refsinganna en hvorki liggja fyrir gögn um reynslulausn né skilyrði hennar. Þá var Rolandas Jancevicius dæmdur í í tveggja ára fangelsi fyrir þjófnað 1999 og hlaut fjögurra ára fangelsisdóm fyrir rán 2002. Hann hefur afplánað þær refsingar í heimalandi sínu. Ekki liggur fyrir hvort mennirnir áfrýi niðurstöðu Héraðsdóms.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira