Ósammála ungliðar í Reykjavík 24. janúar 2008 17:29 Það var þéttsetið á borgarstjórnarfundi í Ráðhúsinu í dag.
Ungliðahreyfingarnar keppast nú við að koma skoðunum sínum á nýjum borgarmeirihluta á framfæri. Ungliðahreyfingar vinstriflokkanna segja hátt í þúsund manns hafa komið og mótmælt í Ráðhúsinu í dag. Heimdellingar segja hinsvegar framkomu þeirra bera vott um ótrúlega óvirðingu gagnvart öllum borgarfulltrúum Reykvíkinga og þeim almennu reglum sem gilda um lýðræðislega meðferð mála í þjóðfélaginu. Eins og flestum ætti að vera kunnugt um þurfti að stöðva borgarstjórnarfund í dag og rýma áhorfendapalla vegna mikilla láta og mótmæla í garð hins nýja meirihluta. Hér að neðan má sjá yfirlýsingar frá báðum fylkingunum í heild sinni. Yfirlýsing frá Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík „Ungir sjálfstæðismenn í Reykjavík harma framferði ungliðahreyfinga vinstriflokkanna á borgarstjórnarfundinum fyrr í dag. Þótt það sé sjálfsagt að láta í ljós andstöðu sína með mótmælum er ótækt að hindra eðlilegan framgang borgarstjórnarfundar sem var haldinn á löglegan og lýðræðislegan hátt. Þessi framkoma ber vott um ótrúlega óvirðingu gagnvart öllum borgarfulltrúum Reykvíkinga og þeim almennu reglum sem gilda um lýðræðislega meðferð mála í þjóðfélaginu. Slíkt er hvorki lýðræðinu til framdráttar né til þess fallið að skapa virðingu fyrir ungu fólki í stjórnmálum." Yfirlýsing frá ungliðahreyfingum Samfylkingarinnar, Vinstri grænna, Framsóknar og ungra stuðningsmanna Margrétar Sverrisdóttur „Hátt í þúsund Reykvíkingar tóku þátt í mótmælunum sem fram fóru í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Magnað var að sjá þann fjölda almennra borgara á öllum aldri sem mættu til að láta í ljós hversu mjög Reykvíkingum er misboðið. Ungliðahreyfingunum sem efndu til mótmælanna finnst ekki síst ánægjulegt að sjá hversu margir mættu á eigin vegum til að láta í ljós óánægju sína. Krafan fyrir fundinn var að hætt yrði við myndun hins nýja óstarfahæfa meirihluta. Hvergi verður kvikað frá þeirri kröfu. Vilja hreyfingarnar beina því til einstaklinga innan nýja meirihlutans, sem nýtur stuðnings innan við fjórðungs borgarbúa samkvæmt nýlegri könnun, að skynsamlegast væri að sjá að sér og hætta við. Atburðurinn í ráðhúsinu í dag var sögulegur. Bæði var sögulegt að sjá rödd hins almenna borgarbúa mótmæla svo kröftuglega, og því miður var einnig sögulegt að horfa upp hryggilegar aðfarir hins nýja meirihluta. Það er sorglegt að fyrsta verk hins nýja meirihluta hafi verið að þagga niður í þeim sem komu til að tjá skoðun sína á nýjum meirihluta. Við hvetjum alla Reykvíkinga til að sýna áfram samstöðu gegn honum."
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira