Þriggja ára fangelsi fyrir að klippa fingur af manni 24. janúar 2008 16:42 MYND/E.Ól
Hæstiréttur hefur þyngt dóm yfir Kristjáni Halldóri Jenssyni um eitt ár fyrir bæði húsbrot og aðild að hrottafenginni líkamsárás á Akureyri þar sem fingur var klipptur af fórnarlambi. Hlaut hann þriggja ára dóm. Kristján var ákærður ásamt tveimur öðrum fyrir tvö húsbrot og þá var hann ákærður fyrir stórfellda líkamsárás ásamt öðrum manni. Í ákærunni var talið að Kristján hefði slegið fórnarlambið með hafnaboltakylfu svo það féll í gólfið og svo sparkað ítrekað í það. Samverkamaður hans var ákærður fyrir að hafa litla fingur af fórnarlambinu en Kristján fyrir aðild að því. Kristján neitaði að hafa sparkað í fórnarlambið og að hafa tekið þátt í að klippa fingur af því en játaði brot sín að öðru leyti. Með framburði vitna þótti hins vegar sannað að hann hefði sparkað í manninn og þá var fallist á aðild hans að því að klippa fingurinn af manninum. Með brotum sínum rauf Kristján skilorð 45 daga fangelsisrefsingar samkvæmt dómi frá 2005 og var hann tekinn upp og dæmt í einu lagi. Tveir eldri dómar vegna líkamsárása höfðu einnig ítrekunaráhrif. Þá var litið til þess við ákvörðun refsingar að Kristján og samverkamaður hans stóðu saman að líkamsárásinni, hversu hrottafengin hún var og þeirra afleiðinga sem hlutust af henni auk þess sem skipulagning og aðdragandi hennar þóttu bera vott um einbeittan ásetning. Þótti þriggja ára dómur hæfileg refsing en hann hafði í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í tveggja ára fangelsi.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira