N1 hækkar bensín og dísilolíu um 2.50 krónur á lítra 23. janúar 2008 19:30
N1 hækkaði í gær bensín og dísilolíu um 2.50 krónur á lítra. Sama dag hækkaði Skeljungur hjá sér og árla í morgun var Olís búið að hækka hjá sér um sömu upphæð. ÓB, sem er í eigu Olís, hækkaði einnig hjá sér dísilolíuna um 2,50 krónur en bætti aðeins út í bensínið og hækkaði það um 2.60 krónur á lítra. Nú rétt áðan var Atlantsolía einnig að hækka hjá sér um sömu upphæð og ÓB. Þegar þetta er ritað er ekki búið að breyta verðum hjá Orkunni og Ego. Gengi íslensku krónunnar hefur verið að falla í þessum mánuði. Gengi Bandaríkjadals fór yfir 67 krónur í gær sem er hæsta gengið í mánuðinum. Á sama tíma hefur heimsmarkaðsverð á bensíni og dísliolíu verið að lækka. Bensíntonnið var um 90 bandríkjadölum ódýrara í gær en það var fyrstu dagana í janúar. Kostnaðarverð á hvern lítra af bensíni uppreiknað í íslenskar krónur á lítra var um einni krónu hærra gær (22.01.08) samanborið við meðalverðið í síðustu viku. Meðalverðið í þeirri viku var forsenda þess að olíufélögin lækkuðu um eina krónu þann 18. janúar eftir að FÍB ýtti við þeim. Hækkun kostnaðarverðs um eina krónu í gær skilaði sér samdægurs í 2.50 króna hækkun til neytenda. Til samanburðar þá var kostnaðarverð á hvern lítra af bensíni rétt fyrir áramótin svipað og í gær. Þá var útsöluverðið til neytenda 132.90 krónur á lítra í sjálfsafgreiðslu á þjónustustöð en er núna komið í 135.90. Olíufélögin eru að hækka langt umfram eðlileg viðmið með þessum síðustu verðbreytingum. Til samanburðar þá er meðalkostnaður íslenskra neytenda vegna álagningar, flutnings og dreifingar á bensíni það sem af er janúar yfir 4 krónum hærra á hvern lítra og um 2 krónum hærra á hvern lítra af dísilolíu samanborið við meðalverð liðins árs (2007) uppreiknað til verðlags nú í janúar 2008. Eftir hækkunina í gær og dag kostar bensínið með þjónustu hjá N1, Shell og Olís 140.90 krónur hver lítri og dísilolían er á 143.40 krónur. Sjálfsafgreiðsluverðið er 135.90 krónur á litra af bensíni og 138.40 krónur dísillítrinn. Hjá ÓB og Atlantsolíu kostar bensínið 134.30 krónur hver lítri en kostaði fyrir hækkun 131.70 krónur. Dísillinn kostar 136.80 krónur hver lítri. Ennþá er óbreytt verð hjá Ego þ.e. 131.70 krónur bensínið og 134.30 krónur dísilolían. Orkan er 10 aurum undir. Þar kostar bensínið kr. 131.70 og dísilolían kr. 134.20.
Mest lesið Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira