Vistunarmatsnefndum fækkað úr 40 í sjö 11. janúar 2008 15:54 MYND/GVA
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð um vistunarmat í tengslum við breytingar á lögum um málefni aldraðra sem hefur í för með sér að vistunarmatsnefndum fækkar úr 40 í sjö. Fram kemur í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu að vistunarmat vegna hjúkrunarrýma flytjist frá þjónustuhópum aldraðra á vegum sveitarfélaganna til sérstakra vistunarmatsnefnda sem ráðherra skipar. Starfssvæði nefndanna fellur að heilbrigðisumdæmum landsins sem eru sjö talsins. Hlutverk þeirra verður eingöngu að meta þörf fólks fyrir vistun í hjúkrunarrými, óháð aldri. Markmiðið með breytingunni er að stuðla að auknu samræmi við gerð vistunarmats og tryggja eins og kostur er faglegar og samanburðarhæfar niðurstöður vistunarmats um allt land, eins og segir í tilkynningu ráðuneytisins. Samfara þessum breytingum verður eftirlitsnefnd um vistunarmat aldraðra lögð niður og ábyrgð á vistunarmati og framkvæmd þess flyst frá heilbrigðisráðuneyti til landlæknis. Breytingarnar eru meðal annars gerðar með hliðsjón af ábendingum Ríkisendurskoðunar í stjórnsýsluúttekt á þjónustu við aldraða. Sem fyrr munu stjórnir stofnana taka ákvörðun um hverjir vistaðir eru í hjúkrunarrýmum á viðkomandi stofnun, en ákvörðunarvald þeirra er þrengt frá því sem áður var þegar ríkið greiðir fyrir rýmin. Breytt fyrirkomulag felst m.a. í því að þegar hjúkrunarrými losnar á stofnun skal vistunarmatsnefnd veita viðkomandi stofnun aðgang að upplýsingum um þá þrjá sem óskað hafa eftir vistun þar og metnir eru í mestri þörf umsækjenda fyrir hjúkrunarrými samkvæmt niðurstöðum vistunarmatsnefndar. Ákvörðun um þessa þrjá skal byggð á stigafjölda samkvæmt vistunarmati, eins og segir í tilkynningunni. Í vistunarmatsnefndunum sjö eru tveir fulltrúar heilbrigðisráðherra og einn fulltrúi tilnefndur af félagsmálráðherra.
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Sjá meira