Íhuga að kæra Hjörleif Kvaran 4. janúar 2008 19:32
Eigendur fornbókabúðarinnar Bókin íhuga að höfða meiðyrðamál á hendur Hjörleifi Kvaran vegna ummæla sem hann lét falla í 24 stundum í dag. Þar sakaði hann eigendurnar um að vera vitorðsmenn í þjófnaði á tugum fágætra bóka. Þjófnaðurinn var kærður síðasta sumar en talið er að hann hafi átt sér stað fyrir rúmu ári. Bækurnar tilheyra dánarbúi Böðvars Kvaran. Lögreglan birti í gær lista yfir þær bækur sem er saknað en um er að ræða fjöldan allan af fágætum bókum. Þar á meðal útgáfu af Snorra-Eddu og Völuspá frá 17. öld og Konungasögur Snorra Sturlusonar frá árinu 1633. Verðmæti safnsins hleypur á milljónum króna. Í 24 stundum í dag segist Hjörleifur Kvaran hæstaréttarlögmaður og sonur Böðvars hafa vitnesku fyrir því að bækurnar hafi lent í höndum eigenda fornbókabúðarinnar. Sakar hann eigendurnar ennfremur um að vera vitorðsmenn í málinu. En þeir segja að það sem fram kemur í 24 stundum í dag sé hreint með ólíkindum og alrangt. Ari segir að verslunin hafi keypt bækur úr safninu í góðri trú af einstaklingi sem hafi boðið þær til sölu. Bókunum hafi hins vegar verið skilað þegar upp komst að um þýfi væri að ræða. Hann segir ásakanir Hjörleifs vera úr lausu lofti gripnar og íhugar jafnvel að fara í meiðyrðamál vegna þeirra. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er rannsókn málsins langt komin og hafa henni nýlega borist upplýsingar sem gætu varpað ljósi á málið. Engar bækur hafa þó skilað sér síðan lögreglan birti listann í gær.
Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira