Innlent

Íhuga að kæra Hjörleif Kvaran

Eigendur fornbókabúðarinnar Bókin íhuga að höfða meiðyrðamál á hendur Hjörleifi Kvaran vegna ummæla sem hann lét falla í 24 stundum í dag. Þar sakaði hann eigendurnar um að vera vitorðsmenn í þjófnaði á tugum fágætra bóka.

Þjófnaðurinn var kærður síðasta sumar en talið er að hann hafi átt sér stað fyrir rúmu ári. Bækurnar tilheyra dánarbúi Böðvars Kvaran. Lögreglan birti í gær lista yfir þær bækur sem er saknað en um er að ræða fjöldan allan af fágætum bókum. Þar á meðal útgáfu af Snorra-Eddu og Völuspá frá 17. öld og Konungasögur Snorra Sturlusonar frá árinu 1633. Verðmæti safnsins hleypur á milljónum króna.

Í 24 stundum í dag segist Hjörleifur Kvaran hæstaréttarlögmaður og sonur Böðvars hafa vitnesku fyrir því að bækurnar hafi lent í höndum eigenda fornbókabúðarinnar. Sakar hann eigendurnar ennfremur um að vera vitorðsmenn í málinu. En þeir segja að það sem fram kemur í 24 stundum í dag sé hreint með ólíkindum og alrangt.

Ari segir að verslunin hafi keypt bækur úr safninu í góðri trú af einstaklingi sem hafi boðið þær til sölu. Bókunum hafi hins vegar verið skilað þegar upp komst að um þýfi væri að ræða. Hann segir ásakanir Hjörleifs vera úr lausu lofti gripnar og íhugar jafnvel að fara í meiðyrðamál vegna þeirra.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er rannsókn málsins langt komin og hafa henni nýlega borist upplýsingar sem gætu varpað ljósi á málið. Engar bækur hafa þó skilað sér síðan lögreglan birti listann í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×