Sýknaður af líkamsárás í miðborginni 4. janúar 2008 14:36
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað karlmann af ákæru um líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur sumarið 2006. Til stimpinga kom á milli hópa manna á horni Laugavegar og Bergstaðastrætis og var sá sem kærði kýldur í andlitið þannig að framtönn brotnaði og fjarlægja þurfti tönnina. Ákærði neitaði sök í málinu en kannaðist hins vegar við að hafa komið að einhverjum stimpingum á Laugaveginum en ekki tekið þátt í þeim. Segir dómurinn að þrátt fyrir að frásögnin sé með nokkrum ólíkindablæ að ákærði hafi ekki munað eftir því hjá lögreglu að hafa séð frænda sinn þarna í stimpingum verði ekki hjá því litið að vitni séu ekki á einu máli um að ákærði hafi ráðist á þann sem kærði. Þá hafi liðið rúmir sex mánuðir og allt að tíu mánuðir frá atvikinu og þar til lögregla ræddi við vitni. Þá var ákæra ekki gefin út fyrr en í lok október 2007. Þegar svo langur tími líði hljóti það óhjákvæmilega að hafa áhrif á minni vitna og áreiðanleika þeirra. Öll vitni í málinu séu annaðhvort skyldmenni eða vinir annars vegar ákærða og hins vegar kæranda. Að teknu tillit til þessa taldi dómurinn því ekki útilokað að einhver annar en ákærði hefði ráðist á manninn umræddan morgun sumarið 2006. Væri slíkur vafi á sekt ákærða að það bæri að sýkna hann af ákæru um líkamsárás.
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Fleiri fréttir Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Sjá meira