Vöruskiptahalli minnkar um 13 milljarða í nóvember milli ára 4. janúar 2008 09:24 Minnkandi vöruskiptahalli skýrist fyrst og fremst af auknum útflutningi. MYND/Vilhelm
Vöruskipti við útlönd í nóvembermánuði síðastliðnum reyndust óhagstæð um 2,5 milljarða króna en það er 13 milljörðum króna minni halli en í nóvember árið 2006. Fram kemur á vef Hagstofunnar að fluttar hafi verið út vörur um fyrir tæpan 31 milljarð króna og inn fyrir nærri 33,5 milljarða í nóvember. Tölur Hagstofunnar sýna enn fremur að fyrstu ellefu mánuði síðasta árs hafi verið fluttar út vörur fyrir tæpa 270 milljarða króna en inn fyrir rúma 353 og því reyndist vöruskiptahallinn um 84 milljarðar. Það er rúmum 50 milljörðum króna minni halli en á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2006. Fyrstu ellefu mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruútflutnings 50 milljörðum eða tæpum 23 prósentum meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44 prósent alls útflutnings og útfluttar iðnaðarvörur voru 41 prósent útflutningsins. Var verðmæti þeirra rúmum 35 prósentum meira en árið áður. Aukningu útflutnings má einna helst rekja til aukins álútflutnings og aukinnar sölu á skipum og flugvélum.Fyrstu ellefu mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruinnflutnings einum milljarði eða 0,3 prósentum minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í innflutningi á flugvélum og fjárfestingarvöru en á móti kom aukning í innflutningi á mat- og drykkjarvöru og annarri neysluvöru eftir því sem segir á vef Hagstofunnar.
Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Sjá meira