Kynbundinn launamunur eykst milli ára hjá SFR-félögum 11. september 2008 11:13 Árni Stefán Jónsson er formaður SFR. MYND/Völundur
Kynbundinn launamunur hjá stéttarfélaginu SFR reyndist 17 prósent samkvæmt nýrri launakönnun sem Capacent gerði fyrir félagið. Eykst hann um þrjú prósent á milli ára. Fram kemur á heimasíðu SFR að meðalheildarlaun félagsmanna í fullu starfi hafi verið rúmar 300 þúsund krónur í ár. Meðalheildarlaun karla voru 376 þúsund en kvenna 274 þúsund. Konur höfðu því samkvæmt launakönnuninni um 27 prósentum lægri heildarlaun er karlar. Þegar tekið hefur verið tillit til aldurs, vinnutíma og menntunar og fleiri þátta reynist óútskýrður launamunur um 17 prósent en hann var rúm 14 prósent í könnun sem gerð var í fyrra. „Því miður sýnir launakönnunin að launamunur kynjanna er viðvarandi og vaxandi vandamál hjá hinu opinbera og lítur SFR það mjög alvarlegum augum," segir í tilkynningu SFR. Færri undir 200 þúsund krónum Könnun SFR leiðir enn fremur í ljós að meðalgrunnlaun SFR-félaga hafi verið 252 þúsund og hækkuðu þau um 14 prósent að meðaltali á milli áranna 2007 og 2008. Heildarlaunin hækkuðu um 11 prósent. „Á sama tímabili hækkuðu kjarasamningsbundin laun um 5,26% sem skýrist af 3,2% hækkun launa frá og með 1. maí 2007 og 2% hækkun á launatöflu um áramót 2007-2008. Það má því segja að heildarlaun félagsmanna SFR hafi hækkað um 6 prósentustig umfram kjarasamningsbundnar hækkanir á árinu og grunnlaun að sama skapi um níu prósentustig umfram samningsbundnar hækkanir," segir SFR. Verulega hefur fækkað í þeim hóp félagsmanna SFR sem eru með undir 200 þúsund krónur í heildarlaun. Þeir voru um 19 prósent félagsmanna í fyrra en eru nú níu prósent. Sömuleiðis hefur fjölgað í hópi þeirra félagsmanna sem hafa yfir 400 þúsund í mánaðarlaun. Í fyrra voru það níu prósent félagsmanna en nú eru það tæp 17 prósent.
Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent „Veiddu“ grænmetissala með dróna Erlent Fleiri fréttir Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sjá meira