Innlent

Glæpagengi rænir hundruð þúsundum króna úr hraðbönkum

Hundruð þúsundum króna hefur verið rænt úr hraðbönkum hér á landi undanfarinn sólarhring, eftir því sem fram kom í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. Talið er að erlend glæpagengi séu að verki og að þau notist við stolin eða fölsuð erlend greiðslukort. Jafnframt er talið að þeir sem hafi verið að verki undanfarinn sólarhring tengist glæpagengi sem rændi hraðbanka hér á landi um páskana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×