Sjálfstæðisflokkurinn tapar þriðjungi á landsbyggðinni 22. júní 2008 07:00
Fylgi Sjálfstæðisflokksins dregst saman um tæp sex prósentustig frá því í apríl. 32,8 prósent segjast nú myndu kjósa flokkinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar sérstaklega á landsbyggðinni. Nú segjast 25,6 prósent kjósenda sem búsettir eru utan höfuðborgarsvæðisins myndu kjósa flokkinn, en í apríl voru það 39,4 prósent. Fylgi flokksins hefur því dregist þar saman um þriðjung. Samkvæmt því myndu þingmenn Sjálfstæðisflokksins vera 21, en þeir eru 25 nú. Fylgi Samfylkingar eykst hins vegar um rúm fimm prósentustig frá síðustu könnun. 32,0 prósent segjast nú myndu kjósa flokkinn. Meðal kjósenda utan höfuðborgarsvæðisins eykst fylgi Samfylkingarinnar um 75 prósent, úr 21,2 prósentum í 37,2 prósent. Í apríl dalaði fylgi flokksins á landsbyggðinni hins vegar um þrettán prósentustig. Þingmenn Samfylkingar yrðu samkvæmt þessu 21, en eru nú átján. Fylgi Vinstri grænna dregst saman um tæp fjögur prósentustig frá síðustu könnun og segist 17,1 prósent styðja flokkinn. Samkvæmt því myndi þingflokkur Vinstri grænna telja ellefu manns, tveimur fleiri en flokkurinn hefur nú. Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn bæta báðir aðeins við sig fylgi frá síðustu könnun Fréttablaðsins. 8,9 prósent segjast nú myndu kjósa Framsóknarflokkinn, sem er tæpum tveimur prósentustigum meira en í síðustu könnun blaðsins. Flokkurinn fengi samkvæmt því fimm þingmenn kjörna, en hefur sjö nú. Fylgi Frjálslynda flokksins eykst um 2,5 prósentustig frá því í apríl. 8,0 prósent segjast nú myndu kjósa flokkinn og fengi hann samkvæmt því fimm þingmenn. Einn maður myndi því bætast við þingflokkinn.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira