Landhelgisgæslan siglir kvótalausa sjómanninum í land Breki Logason skrifar 7. ágúst 2008 13:24 Ásmundur Jóhannsson
Ásmundur Jóhannsson kvótalausi sjómaðurinn úr Sandgerði, sem hefur verið að mótmæla undanfarið er á leið í land í fylgd Landhelgisgæslunnar. Ásmundur fór enn eina ferðina til veiða í morgun en Landhelgisgæslan er nú komin um borð og siglir bátnum hans í land. Þetta er í fyrsta skipti sem farið eru um borð hjá Ásmundi. Grétar Mar Jónsson þingmaður Frjálslynda flokksins segir í samtali við Vísi að um klukkustund sé í að Ásmundur komi í land. „Hann hringdi í mig áðan og sagði að búið væri að hertaka skipið," segir Grétar sem er einnig sandgerðingur eins og Ásmundur. „Ég veit nú ekki hvort þeir eru með hann í járnum en þeir eru allavega komnir um borð í bátinn og eru að sigla honum í land, sjálfsagt í hans óþökk. Þetta er í fyrsta skipti sem þeir fara um borð hjá honum. Hingað til hafa þeir bara rekið hann í land með talstöð og síma, en eru nú bersýnilega farnir að herða tökin." Ásmundur hefur farið til veiða undanfarið án kvóta og hefur lögregla haft afskipti af honum nokkrum sinnum. Í gær veiddi hann um 750 kíló af þorski.
Tengdar fréttir Kvótalausi sjómaðurinn aftur til veiða Landhelgisgæslan reyndi fyrr í dag að hafa samband við sjómanninn Ásmund Jóhannsson frá Sandgerði sem aftur hefur haldið til veiða kvótalaus. 6. ágúst 2008 12:48 Kvótalausi sjómaðurinn veiddi 750 kíló „Ég er að leggja að bryggju hérna í Sandgerði en hef ekki séð „pólitíið" ennþá. Ég geri samt ráð fyrir að þeir láti sig ekki vanta eins og vanalega," segir Ásmundur Jóhannsson kvótalaus sjómaður sem fór til veiða í dag. Vísir sagði frá því fyrr í dag að Landhelgisgæslan hefði reynt að ná sambandi við Ásmund sem var við veiðar út af Garðskaga en án árangurs. 6. ágúst 2008 14:02 Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira
Kvótalausi sjómaðurinn aftur til veiða Landhelgisgæslan reyndi fyrr í dag að hafa samband við sjómanninn Ásmund Jóhannsson frá Sandgerði sem aftur hefur haldið til veiða kvótalaus. 6. ágúst 2008 12:48
Kvótalausi sjómaðurinn veiddi 750 kíló „Ég er að leggja að bryggju hérna í Sandgerði en hef ekki séð „pólitíið" ennþá. Ég geri samt ráð fyrir að þeir láti sig ekki vanta eins og vanalega," segir Ásmundur Jóhannsson kvótalaus sjómaður sem fór til veiða í dag. Vísir sagði frá því fyrr í dag að Landhelgisgæslan hefði reynt að ná sambandi við Ásmund sem var við veiðar út af Garðskaga en án árangurs. 6. ágúst 2008 14:02