Innlent

Hálka víðsvegar á vegum landsins

Hálkublettir eru frá Reykjavík upp í Borgarfjörð en víða hálka í Dölum og á Snæfellsnesi samkvæmt Vegagerðinni. Fróðárheiði er þungfær.

Á Vestfjörðum er Klettsháls ófær og eins er víða þungfært í Djúpinu en alls staðar er búið að melda mokstur.

Það er hálka á Holtavörðuheiði og víðast hvar í Húnavatnssýslum. Þverárfjall er ófært en verið er að moka á Siglufjarðarvegi.

Á Víkurskarði er enn beðið með mokstur en verið er að skoða Grenivíkurveg. Ófært er fyrir Melrakkasléttu.

Á Austurlandi er hálka nokkuð víða og skafrenningur á Fjarðarheiði. Breiðdalsheiði er ófær en hálka er á Öxi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×