Kínverjar styðja framboð Íslands til Öryggisráðsins 27. apríl 2008 14:01 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir MYND/GVA
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra var gestur í Silfri Egils Helgasonar fyrir stundu. Fór hún um víðan völl og ræddi meðal annars um evrópusambandsaðild, öryggisráðið og íslensku krónuna. Ingibjörg sagði Kínverja styðja framboð Íslands til Öryggisráðsins. Hún lagði áherslu á að framboð okkar væri norrænt og fulltrúar norðurlandanna hafi þrýst á okkur að bjóða okkur fram og sagði það skipta miklu máli. „Okkar heiður er að veði og við verðum að gera þetta almennilega á lokasprettinum og komast frá þessu með sóma," sagði Ingibjörg. Hún sagðist leggja mikla áherslu á að fara ekki frá þessu með skottið á milli lapanna því hún vildi ekki að það væri orðspor okkar á alþjóðavettvangi. Ingibjörg telur möguleika okkar ágæta og segir þann stuðning sem við teljum okkur vera með eiga að duga ef hann skilar sér allur. Hún sagði Tyrkland og Austurríki, sem einnig sækjast eftir sætinu, leggja mikið á sig og eyða gríðarlegum fjármunum sem við gætum ekki gert. „Við reynum að vekja athygli á okkur og það hefur gengið ágætlega." Ingibjörg sagðist ekki vita hvort við værum með stuðning Bandaríkjanna þar sem þeir gæfu það ekki upp en Kína styður okkur að sögn Ingibjargar. Aðspurð um þá gagnrýni sem Ingibjörg hefur orðið fyrir um að hún sé of lítið að sinna málum hér á landi sagði hún. „Ég stend mig hér heima og geri það alveg svikalaust. Það er líka komin ágæt tækni eins og tölva og sími. Það er ýmislegt hægt að gera þó maður sé ekki endilega á hverjum degi á staðnum."
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira