Strætó aftur á næturnar? 20. júní 2008 11:04 Gott væri að geta nýtt sér þjónustu strætó á næturnar.
Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri vill taka aftur upp næturstrætisvagnaleiðir úr miðborginni um helgar samkvæmt Fréttablaðinu í dag. Ættu þær leiðir að fara á klukkutímafresti á milli þrjú og fimm. Slíkar leiðir voru farnar um nokkurra ára skeið en hætt árið 2002 samkvæmt Ásgeiri Eiríkssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra Strætó bs., vegna lítillar aðsóknar. Samkvæmt Ásgeiri var góð ásókn í næturstrætisvagna alveg þangað til að opnunartími veitinga-og skemmtistaða var gefinn frjáls. Fyrir það lokaði flestallt kl. þrjú þannig að strætisvagnarnir fóru kl hálfþrjú og hálffjögur þegar margir voru á heimleið. Eftir þær breytingar hefði fólk hins vegar verið á leiðinni heim á svo misjöfnum tíma að það hefði bara verið hræða á stangli sem nýtti sér þjónustuna. Hann taldi sig ekki hafa neinar forsendur til þess að meta hvort tilraunin myndi heppnast ef farið yrði í hana nú en kreppan gæti stuðlað að meiri aðsókn í næturstrætisvagna. Ingunn Guðnadóttur, trúnaðarmaður strætisvagnabílstjóra, sagði í samtali við Vísi að henni litist ekki illa á þessa hugmynd og að það væri sjálfsagt að gefa þessu tækifæri. Fólk þyrfti hins vegar að nýta sér þessa þjónustu og ekki væri hægt að kvarta eftir á ef engin yrði aðsóknin. Hún taldi líklegast skiptar skoðanir á meðal strætóbílstjóra en sjálf hefði hún stundum keyrt þessar leiðir og ekki lent í neinum erfiðleikum sem ekki væri hægt að yfirstíga.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira