Innlent

Gámur fauk af vörubíl

Fjörutíu feta gámur fauk af vörubíl á Kjalarnesi undir morgun en þar fer vindurinn upp undir 30 metra á sekúndu í kviðum. Þar fauk líka stór gámur við Klébergsskóla, en olli ekki skemmdum eftir því sem best er vitað. Lögregla varar ökumenn við að fara þarna um.

Þá er mjög hvasst í Gilsfirði og það er bál hvasst austan við Vík í Mýrdal. Nokkrar tilkynningar hafa borist um fjúkandi hluti í Reykjavík, en ekkert alvarlegt tjón hefur verið tilkynnt. Það er líka hvasst á Reykjanesi og þar fauk meðal annars trambolín á húsvagn og skemmdi hann eitthvað.

Annars er vindstyrkurinn á höfuðborgarsvæðinu minni en búist var við, og ekki er enn byrjað að rigna að ráði, en spáð var miklu vatnsveðri.-






Fleiri fréttir

Sjá meira


×