Árásir á lögreglu grófari en áður 7. september 2008 19:00
Lögreglumenn telja að árásum á sig hafi fjölgað og brotin orðið grófari en áður. Formaður Landssambands lögreglumanna óttast að aukið ofbeldi gegn lögreglunni tengist starfsemi alþjóðlegra glæpasamtaka hér á landi. Fimm Litháar voru í nótt handteknir eftir árás á lögregluþjón í heimahúsi. Ráðist var á lögreglumann í nótt við heimahús í Kópavogi. Hann var ásamt félaga sínum kallaður þangað vegna hávaða. Þegar þeir reyndu að ræða við húsráðendur var ráðist á annan þeirra, hann skallaður, tekinn hálstaki og svo snúinn niður. Fjölmennt lögreglulið var kallað til aðstoðar og beitti það varnarúða og kylfum til að yfirbuga árásarmennina. Fimm voru handteknir. Sá sem fyrir árásinni varð slasaðist ekki alvarlega. Lögreglumenn telja að árásum á sig hafi fjölgað undanfarið. Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, segir brotin gegn þeim orðin grófari og meiri óvirðingu vera fyrir lögreglunni. Hann segir lögreglumenn sjá aukningu á ofbeldi útlendinga í sinn garð og þverrandi virðingu. Snorri vill ekkert segja um þjóðerni þessara hópa. Árásarmennirnir í nótt voru samkvæmt heimildum fréttastofu Litháar en undanfarin misseri hafa fréttir af afbrotum Litháa nokkuð reglulega ratað í fjölmiðla. Snorri segir ofbeldið grófara hjá þeim hópum útlendinga sem hann talar um. Hann bendir á að skýrslur hafi verið birtar um að erlend glæpasamtök teygji anga sína hingað til lands og óttast að aukið ofbeldið í garð lögrelgunnar tengist því.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Sjá meira