Sýknaður af ákæru um nauðgun 19. júní 2008 10:50
Héraðsdómur Austurlands sýknaði í gær karlmann af ákæru um að hafa fyrr á þessu ári nauðgað fjórtán ára stúlku í tvígang og fyrir tilraun til nauðgunar. Samkvæmt ákæru voru brotin þrjú og áttu að hafa átt sér stað 9. og 10. febrúar, annars vegar á heimili stúlkunnar og hins vegar á heimili þar sem hún var að gæta barna. Maðurinn neitaði sök í málinu en hann var vinur fjölskyldu stúlkunnar. Dómurinn benti á að maðurinn hefði frá upphafi neitað öllum sakargiftum en framburður hans hefði þó ekki að öllu leyti verið stöðugur. Meðal annars hefði hann ekki sagt satt um að hann hefði komið á heimilið þar sem stúlkan var að gæta barna og tvö brotanna áttu að hafa átt sér stað. Þá þótti hann hafa verið margsaga um símasamskipti við stúlkuna sem reyndust allnokkur. Dómurinn komst hins vegar að því að sýkna bæri mannin af ákærunni, meðal annars með vísan til að stúlkan og maðurinn hefðu átt í miklum símasamskiptum eftir að meint nauðgun hefði átt sér stað. Þá hefði engin læknisrannsókn farið fram á stúlkunni og ekki lægi fyrir sálfræðilegt mat um hugsanlegar afleiðingar af ætlaðri nauðgun. Þá þótti framburður foreldra stúlkunnar um afleiðingar verknaðanna og breytingar á hegðun hennar ekki benda til þess að stúlkan hefði orðið fyrir alvarlegu andlegu áfalli. Var maðurinn því sýknaður.
Mest lesið Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Fleiri fréttir Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Sjá meira