Engar reglur um níu milljón króna verðlaunafé forseta 10. apríl 2008 17:07 "
Ég hygg að það séu engar reglur um verðlaun sem forseta eru veitt sem einstaklingi. En forseti þiggur ekki laun frá öðrum en íslenska ríkinu á meðan hann gegnir embætti." Þetta segir Örnólfur Thorsson, hjálparhella Ólafs Ragnar Grímssonar, en Ólafur á von á veglegum bónus á næstunni. Indverski sendiherrann á Íslandi tilkynnti nefnilega á dögunum að Ólafi yrði veitt Nehru verðlaunin en þeim fylgir 5 milljón indverskar rúpíur, eða níu milljónir króna. Örnólfur segist ekki hafa grænan grun um hvernig Ólafur hyggist eyða verðlaunafénu. Aðspurður hvort Ólafur hafi nokkurn tímann fengið svo ríflegt verðlaunafé áður svarar Örnólfur að hann reki ekki minni til þess. "Ég man satt að segja ekki eftir því að íslenskur forystumaður hafi fengið áþekk verðlaun," sagði Örnólfur Thorsson svo við Vísi um það leiti sem símasamband hans við blaðamann slitnaði. Meðal þeirra sem hlotið hafa Nehru verðlaunin eru Martin Luther King, forystumaður í réttindabaráttu blökkumanna, Nelson Mandela, leiðtogi Suður-Afríku, Móðir Teresa, leiðtogi í mannúðar- og líknarstarfi, og Helmut Kohl, kanslari Þýskalands ásamt Olof Palme forsætisráðherra Svíþjóðar. Við þennan lista má bæta bæði Robert Mugabe, forseta Simbabve, og Tito, leiðtoga Júgóslavíu. Mugabe fékk verðlaunin árið 1989 og Tito árið 1971. Þá fékk Jassir Arafat, leiðtogi Palestínumanna, verðlaunin árið 1988.
Mest lesið Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Innlent Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Erlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Fleiri fréttir Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Sjá meira