Lífið

26 milljónum veitt til menningarstarfsemi

Ívar Örn Sverrisson var á meðal styrkþega en hann hyggst setja upp Óþelló á næstunni.
Ívar Örn Sverrisson var á meðal styrkþega en hann hyggst setja upp Óþelló á næstunni.

Menningar- og ferðamálaráð boðaði til móttöku og blaðamannafundar í Iðnó í dag, í tilefni úthlutunar styrkja menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar og útnefningar Tónlistarhóps Reykjavíkur 2008. Þar gerði Margrét Sverrisdóttir formaður menningar- og ferðamálaráðs grein fyrir úthlutuninni og Ísafold - Kammersveit sem útnefnd var Tónlistarhópur Reykjavíkur 2008 lék að viðstöddum styrkþegum.

„48 styrkir voru veittir til verkefna og liststarfsemi 2008, samtals að upphæð 26 milljónir króna og er það tæplega 6 milljón króna hækkun frá síðasta ári," segir í tilkynningu frá ráðinu. „Ráðið veitti styrkina að tillögu fagnefndar er skipuð var fulltrúum Bandalags íslenskra listamanna. Jafnframt samþykkti ráðið að veita tvo styrki samtals að upphæð 700 þús. kr. af fjárveitingu ársins 2007."

Ísafold - Kammersveit var einnig valin Tónlistarhópur Reykjavíkur 2008 og hlýtur þess vegna styrk sem nemur tveimur milljónum króna.

Aðrir styrkir til verkefna og liststarfsemi 2008:

Hæsta styrkinn að upphæð kr. 2.000.000 hlaut Lókal, alþjóðleg leiklistarhátíð sem er nýmæli á sviði leiklistar í borginni. Í gegnum hátíðina gefst borgarbúum færi á að upplifa nýjustu strauma og stefnur í leiklist með sýningum sem taldar eru þær markverðustu í leikhúslífi Evrópu og Bandaríkjanna þá stundina.

Þá hlaut Kling og Bang kr. 1.000.000. Aðstandendur Kling og Bang hafa haldið úti sýningaraðstöðu fyrir samtímalist í rúm fjögur ár en þessi sami hópur stóð einnig á bak við Listverksmiðjuna Klink og Bank. Frumkvæði þeirra og framtak hefur greitt fyrir kynningu á myndlist og listafólki bæði hérlendis og erlendis sem leitt hefur til gróskumikilla tengsla og samstarfsverkefna og gert borgina ríkari sem menningarborg fyrir vikið.

800 þús. kr. styrk hlutu:

Kvikmyndaklúbbutinn Fjalakötturinn

Ívar Örn Sverrisson vegna leikverksins Óþelló

Dansleikhúshópurinn Panic Production.

700 þús. kr. styrk hlutu:

Blúshátíð í Reykjavík

Kvikmyndafélag Íslands ehf

Stuttmyndadagar í Reykjavík

600 þús. kr. styrk hlutu:

Guðmundur Arnar Guðmundsson v. Heims sýn

Höfundamiðstöð Rithöfundasambands Íslands

Myndlistarhátíðin Sequences.

500 þús. kr. styrk hlutu:

Atonal Future

Draumasmiðjan ehf

Hallfríður Ólafsdóttir

Íslenska Hreyfiþróunarsamsteypan

Kristín Mjöll Jakobsdóttir v. Hnúkaþeys

List án landamæra

Listfélag Langholtskirkju

Mýrin - félag um barnabókmenntahátíð

Nordic Affect

Múlinn Jazzklúbbur

Númer 9 ehf. - Ísold Uggadóttir

Samband ísl. myndlistarmanna v. Metropolis

Sjónauki

Sviðslistahópurinn 16 elskendur

Torfusamtökin

Örn Magnússon.

400 þús. kr. styrk hlutu:

Halaleikhópurinn

Hinsegin bíódagar

Kammerkórinn Carmina

Kolbeinn Bjarnason

Leikminjasafn Íslands

Lovísa Ósk Gunnarsdóttir

Ólöf Ingólfsdóttir

Músík og saga ehf

Nýhil

Reykjavík Documentary Workshop

Sigurður Flosason

Sjóminjasafnið

300 þús. kr. styrk hlutu:

Amínamúsík

Félag íslenskra landslagsarkitekta

Félag íslenskra listdansara

Félag íslenskra tónlistarmanna

Húsfélag Alþýðu

IBBY á Íslandi

Ingibjörg Hannesdóttir

Stuttmyndahátíðin Ljósvakaljóð

Tangófélagið

Bryndís Halldórsdóttir

TFA - áhugamannafélag

Að auki af fjárveitingu menningar- og ferðamálaráðs fyrir árið 2007: Myndhöggvarafélagið í Reykjavík vegna verkefnisins Myndlist fyrir alla kr. 350.000.- og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins kr. 350.000.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.