Mega ekki auglýsa lán með 0 prósent vöxtum 16. júní 2008 15:34
Netyendastofa hefur bannað BT að auglýsa lán til kaupa á vörum með 0 prósent vöxtum án þess að birta heildarverð vörunnar sem lánið er veitt vegna. Neytendastofa gerði athugasemdir við auglýsinguna í lok síðasta mánaðar en samkvæmt henni var auglýst „Vaxtalaus veisla". Segir í bréfi stofnunarinnar að í bæklingi BT sé til dæmis boðið til sölu sjónvarp á tæpar hundrað þúsund krónur staðgreitt eða með láni með engum vöxtum með afborgunum að fjárhæð kr. 9.331 á mánuði í tólf mánuði. Segir Neytendastofa að ef afborgunarverð lánsins sé framreiknað sé verð sjónvarpsins nærri 112 þúsund krónur. „Þrátt fyrir það er tekið fram að vextir séu 0% en á annarri blaðsíðu í bæklingnum segir að inn í útreikning mánaðarlegra greiðslna sé 5,8% skuldaálag, 3% lántökugjald og 250 kr. mánaðarlegur færslukostnaður," segir Neytendastofa enn fremur. Telur Neytendastofa að framsetningin hafi verið villandi enda megi neytendur ætla að núll prósenta vextir þýði að enginn kostnaður bætist við staðgreiðsluverð. Þar sem slíkt er brot á reglum um verðupplýsingar í auglýsingum ákvað Neytendastofa að banna BT að auglýsa á þennan hátt þrátt fyrir mótmæli Árdegis, sem rekur BT.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira